Feeds:
Færslur
Ummæli

Þrenna frá Kidda skók sigur

Mættum hálf ryðgaðir eftir langt frí í leikinn í gær. Mættum Áreitni í skemmtilegum leik. Inná byrjuðu Gústi, Haffi, Finnur, Ásgeir, Villi, Gæi, Hjörvar, Hnikarr, HaffiHaff, Kobbi og Kiddi, að mig minnir. Hvorki þjálfarinn né aðstoðarmaðurinn voru mættir í upphafi leiks og er það óafsakanlegt.

Leikurinn var varla byrjaður þegar þeir skoruðu sitt fyrsta mark. Þegar ég kom voru þeir að fagna. Skömmu síðar tók Gústi útspark. Hnikarr nikkaði boltanum mjúklega áfram, beint fyrir fætur Kidda sem sett’ann í bláhornið af löngu færi, yfir markvörðinn. Glæsilegt mark.

Nokkru síðar var brotið á Kidda innan teigs og hann skoraði þriðja mark leiksins úr vítaspyrnu. Staðan orðin 2-1 eftir 17 mínútna leik.  Mörkin héldu áfram að flæða. Á 26. mínútu skoraði framherjinn þeirra annað mark sitt og jafnaði metin 2-2. Sævar er skráður fyrir næsta marki en það kom á 29. mínútu. Okkur sem stóðum á hliðarlínunni sýndist sem um sjálfsmark væri að ræða en Sævar er svo grannur og flottur að það er ekki víst að við höfum séð hann í loftinu. Þetta var nokkuð laglegt skallamark eftir hornspyrnu. Það var svo Kiddi sem skoraði þriðja mark sitt og fjórða mark okkar í fyrri hálfleik eftir glæsilegt einstaklingsframtak. Hrein þrenna hjá honum.

Síðari hálfleikur var mun daprari. Við misstum völdin á miðjunni og þeir komust óhindrað upp kantana hjá okkur. Ég vil að sjálfsögðu kenna skipulagsbreytingum í hálfleik um, frekar en forminu okkar :)
Best að taka fram að við vorum aldrei þessu vant með nóg af varamönnum. Á bekknum byrjuðu Ottó, Skúli, Njörður, Sævar, Hrói, Viktor og Víðir. Allir komu inn á nema Víðir. Sorry kall.

Á 60. mínútu skoraði framherjinn þeirra þriðja markið sitt, sem er algjörlega óásættanlegt. Við það færðist spenna í leikinn. Hnikarr átti skalla í slá og mig minnir að Haffi hafi átt skot í stöng. Ottó átti þrjú dauðafæri en brást bogalistin. Þeir áttu skot í stöng og nokkur ágæt færi. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og unnum við því okkar þriðja sigur í sumar.

Það einkenndi leik okkar í síðari hálfleik að vera óöruggir á boltanum. Allt of oft reyndum negldum við boltanum fram þegar næsti miðjumaður var laus. Á löngum tíma var það svo að djúpi miðjumaðurinn okkar fékk nær aldrei boltann frá vörninni, þó hann væri iðulega frír, og auk þess þeirrar náttúru að finna ávallt samherja. Vegna langra sendinga og hreinsana urðu sóknir okkar oft fámennar og los kom á liðið.

Baráttan var þó góð, að venju. Það er erfitt að horfa fram hjá Kidda við valið á manni leiksins í gær. Hann sá um tvö mörkin alveg sjálfur og gerði auk þess einstaklega vel í fyrsta markinu. Annars var gaman að sjá þá bræður á vellinum í gær; Hnikarr, Hjörvar og Hróa. Allir í toppformi :)

Við erum fjórum stigum frá playoff en það eru sex stig í pottinum. Við eigum eftir að spila við Fc Fame og Nings. Ef við vinnum báða þá eigum við góðan séns á því að komast í umspilsleikina. Það væri sárabót fyrir tjahh, frekar dapurt sumar.

1 Elliði 7 7 0 0 27:8 21
2 Vængir Júpíters 7 6 1 0 29:6 19
3 Kumho 7 6 0 1 28:6 18
4 Fc Fame 7 4 1 2 15:14 13
5 Kærastan hans Ara 8 4 0 4 19:19 12
6 Metro 7 3 0 4 16:26 9
7 TLC 8 2 1 5 17:22 7
8 Nings 7 1 1 5 7:24 4
9 Áreitni 7 1 0 6 10:33 3
10 Fc Ice 7 0 0 7 11:21 0

Á morgun, miðvikudag klukkan 20:00 verður æfing á ÍR svæðinu. Það er á alvöru grasi og við borgum ekkert. Þetta er stórt svæði og þar eru ólæst mörk. Ég má hundur heita ef þar verður allt fullt. Reynum að ná allavega einni fjölmennri æfingu!

Á föstudag verður svo póker. Danni á spilapeninga og er til í póker en hann á ekki borð til að spila á. Ég á stórt borð til að spila á en ekkert alltof stóra íbúð. Get haldið þetta heima hjá mér en ef einhver annar bíður sig fram þá er það hið besta mál.

Meldið ykkur bæði í pókerinn og á æfinguna!

Að lokum má þess geta að Gústi vinnur nú að því að finna tíma fyrir hið árlega golfmót Metró. Það verður snemma í september, þegar Ásgeir er laus.

Baldur

Leikur á morgun

Sævar spyr hvort búið sé að leggja klúbbinn niður. Það er von hann spyrji. Frá því ég kom heim í byrjun júlí hefur ein æfing farið fram. Á hana mættu fjórir eða sex. Við borguðum fyrir æfingaaðstöðu í Mosó, mánuð fram í tímann og tókum þar heila eina æfingu!

Við höfum átt í miklu basli með að ná 11 manns í leikina og fæstir hafa úthald til að klára leikina án þess að togna, fá krampa, lungnaólgu eða kíghósta. Við höfum verið sjálfum okkur verstir, held ég. Bottom line er að hópurinn er allt of lítill, sérstaklega miðað við að fótboltinn hefur ekki verið í forgangi hjá næstum því öllum. Menn sem reiknað var með í upphafi móts hafa verið meiddir, uppteknir eða ekki mætt þegar á reynir. Það hefur því flísast verulega úr hópnum.

Á morgun spilum við á móti FC Ice sem er með færri stig en við, eins og sjá má hér:

1 Elliði 7 7 0 0 27:8 21
2 Vængir Júpíters 7 6 1 0 29:6 19
3 Kumho 7 6 0 1 28:6 18
4 Fc Fame 7 4 1 2 15:14 13
5 Kærastan hans Ara 8 4 0 4 19:19 12
6 TLC 8 2 1 5 17:22 7
7 Metro 6 2 0 4 12:23 6
8 Nings 7 1 1 5 7:24 4
9 Áreitni 7 1 0 6 10:33 3
10 Fc Ice 6 0 0 6 8:17 0

Nú ættu flestir að vera búnir í sumarfríum og við getum vonandi náð í sæmilega mannað lið. Það eru heilir þrír leikir eftir og það er undir okkur komið hvernig við tökum á þeim. Við getum ákveðið að smala í þessa þrjá síðustu leiki og reynt að sleppa við gefa þá.

EÐA. Við getum reynt að líta á þessa þrjá leiki sem tækifæri til að gera gott úr sumrinu. Ég legg til að við mætum í leikinn á morgun og tökum svo 1-2 æfingar næstu þrjár vikur. Með því móti getur þetta orðið skemmtilegur endir á döpru sumri.
Hér fyrir neðan ÍR (bakvið N1) völlinn er hellingur af ágætu grasi (ekki gervi) og4-6 ólæst mörk til taks. Það eru stundum einhverjir krakkar að leika sér á kvöldin en þetta er yfirleitt laust. Við þurfum ekki að borga fyrir þetta.

Ég legg líka til að við verðum með hitting (golfmót, póker eða hannyrðakvöld) um næstu helgi. T.d. föstudag.

Við erum með 6 stig eftri 6 leiki núna. Við getum hæglega endað með 15!
Eftir tímabilið þurfum við svo að ráðast í ítarlega naflaskoðun og sjá hvernig við getum gert þetta betur.

Á morgun er leikur og ég vona að við náum í fullan 16 manna hóp! Látið vita hvort þið komist eða ekki í leikinn á morgun, sem fer fram hjá HK klukkan 21:00.

Látið einnig vita hvort ykkur líst á að æfa 1-2 þær vikur sem eftir eru, og hverjir væru til í að hittast um helgina og gera eitthvað sniðugt.

Baldur

Kumho 5 – 0 Metró

Ég ætla að eyða sem fæstum orðum í þennan blessaða leik. Skemmst er frá því að segja að við drulluðum hressilega upp á bak á mánudaginn, alveg frá því við byrjuðum leikinn, með því að taka miðju og gefa þeim marktækifæri úr því, fram á seinustu mínútu.

Þeir áttu auðvitað mjög góðan leik, en þetta er fjarri því besta liðið sem við höfum spilað við í sumar, og skrifast það á einstaklega lélega frammistöðu af okkar hálfu. Við Gústi bókstaflega gáfum þeim sitthvort markið í fyrri hálfleik og tveggja marka forgjöf er ekki eitthvað sem við getum gefið og ætlast til að vinna leiki.

Næsta leik við FC Ice hefur verið frestað og spilast hann eftir verslunarmannahelgi. Næsta æfing verður á þriðjudaginn 21:15 í mosó. Ég reyni kannski að smala mönnum um helgina á sparkvöll en það kemur betur í ljós þegar nær dregur.

Meldið ykkur fyrir neðan.

Kumho vs. Metró á mánudag.

Skammt er stórra högga á milli, því á mánudaginn fáum við að kljást við Kumho í Fagralundi klukkan 20:30.

Mæting í Fagralund klukkan 20:00 í seinasta lagi

Melda sig inn og út.

Núna þegar júlí, erfiðasti mánuðurinn varðandi sumarfrí, er genginn í garð hefur komið í ljós að við erum allt of fáir virkir spilarar í sumar og einnig eru meiðsli að setja strik í reikninginn. Það má því búast við fámennum hóp í þennan leik eins og tvo seinustu.

Vonandi fáum við smá input frá þessum minna virku til að brúa bilið á meðan þetta erfiðasta gengur yfir.

Tíu mörk í bikar-thriller

Mættum Vængjum júpíters öðru sinni á miðvikudagskvöldið. Leikurinn verður líklega lengi í minnum hafður.

Byrjunarliðið var svona: Gústi – Sævar Víðir Finnur Viktor – Kobbi Haffi Árni Kiddi Ottó- Halldór.
Líkt og í leiknum fyrir viku vorum við fámennir. Njörður kom seint og var á bekknum fyrstu 22 mínúturnar auk þess sem Hjörvar var í búning en var meiddur og kom lítið við sögu.

Við vorum staðránir í að gera betur en í síðustu viku, þar sem við töpuðum 4-2, eftir að hafa verið yfir í hálfleik.
Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar og þau skiptust á að sækja. Til tíðinda dró á 22. mínútu þegar Halldór Svavar hljóp á eftir sendingu til baka á markvörð þeirra, sem gerði ekki betur en svo að boltinn fór í kviðinn á Halldóri og þaðan í netið. Eða var það varnarmaður sem kixaði?

Metrómenn efldust við markið og hertu tökin. Aðeins fjórum mínútum síðar fékk Kiddi góða sendingu og komst einn í gegn. Það þarf ekki að fjölyrða um afgreiðsluna þar, 2-0 og Metró í góðum málum.

Við þetta vöknuðu Vængirnir til lífsins og settu pressu á okkur. Þeir minnkuðu muninn eftir klaufalegt klafs í teignum en jöfnuðu svo metin með laglegu marki á síðustu mínútu hálfleiksins. Við vorum eðlilega nokkuð svekktir með það.

Um miðjan síðari hálfleik var Halldór Svavar aftur á ferðinni þegar hann með hraða sínum og styrk náði boltanum af  varnarmanni, lék á markvörðinn og kom boltanum í autt markið. Frábært einstaklingsframtak, sem fyrr.

3-2 var staðan þar til fjórar mínútur lifðu leiks. Þá höfðu Vængirnir verið mikið með boltann, án þess þó að skapa sér góð færi. Ég man ekki hvernig markið var en þeir allavega jöfnuðu metin á 76. mínútu.

Enn átti eftir að draga til tíðinda. Eftir jöfnunarmarkið geystumst við í sókn og unnum hornspyrnu. Eftir klafs í teignum barst boltinn til Kobba sem átti lélegasta en lúmskasta skot leiksins. Boltinn hreinlega lak í hornið fjær og allt leit út fyrir að Kobbi hefði þarna tryggt okkur sigurinn. Dómarinn sagði þrjár mínútur eftir af leiknum.

Þessar þrjár mínútur voru þær lengstu sem ég hef upplifað. Vængirnir fengu innkast á sínum vallarhelmingi þegar mínúturnar þrjár runnu sitt skeið. Dómarinn leyfði þó eina sókn í viðbót. Leikmaður þeirra fékk boltann á miðjum vellinum og prjónaði sig í gegnum þrjá eða fjóra liðsmenn okkar. Það var ekki fyrr en inn í teig þegar við náðum að stoppa hann. Þar var Finnur að verki og boltinn lak aftur fyrir endamörk. Í stað þess flauta leikinn af benti annars góður dómari leiksins, á punktinn og vildi meina að Finnur hafi gerst brotlegur við knattspyrnulögin. Þessu var mótmælt harðlega enda orkaði dómurinn verulega tvímælis. Úr spyrnunni jöfnuðu þeir 4-4 en leikurinn var flautaður af um leið og spyrnan hafði verið framkvæmd.

Framlenging staðreynd og við nánast án varamanna. Í framlengingunni var bensínið búið. Vængirnir skoruðu mörk á 88. mínútu og annað á 93. Við það tryggðu þeir sér 6-4 sigur í framlengdum spennuleik.

Við vorum að spila þokkalega en höfum átt betri leiki í sumar. Við sýndum mikinn karakter að komast aftur yfir eftir að hafa misst niður tveggja marka forystu. Aftur sýndum við styrk okkar þegar við komumst yfir þegar þrjár mínútur voru eftir. Við vorum ekki nógu klókir síðustu mínúturnar því við hefðum átt að brjóta af okkur eða stoppa manninn löngu áður en hann kom inn í vítateig. Þá hefði leikurinn verið flautaður af, enda tíminn liðinn.

Þetta var sárt en við lærum af þessu. Vængirnir börðust vel og voru heppnir að ná að jafna í lokin. Þökkum þeim fyrir drengilegan leik. Við hefðum svo sannarlega þurft á 2-3 mönnum í viðbót í leikinn. Þá hefðum við klárað dæmið.

Vonandi verður góð æfing á þriðjudag. Við höfum ekki tekið eina alvöru æfingu í allavega mánuð. Það er hræðilegt og það er ljóst að við gætum þurft á liðsstyrk að halda fyrir síðari hluta mótsins. Við erum hreinlega of fáir, miðað við hversu margir forfallast í hverjum leik.

Ég vil hrósa Ottó sérstaklega fyrir mjög góðan leik. Hann bjargaði einu marki og átti líklega sína bestu innkomu í sumar. Halldór var annars maður leiksins að mínu mati. Hann skoraði tvö góð mörk, sem hann bjó sér til úr akkúrat engu, og hljóp allan leikinn eins og óður maður.
Baldur

Taka 2

Mættum Vængjum Júpíters sl. miðvikudag og mætum þeim aftur á morgun. Það gekk mjög erfiðlega að ná í lið í síðasta leik. Að lokum, með því að snúa upp á hendur, náðum við 11 manns auk þess sem Danni kom í hálfleik.

Þrátt fyrir að fyrri hálfleikur hafi verið nokkuð strembinn þá óx okkur ásmegin eftir því sem á hann leið. Þeir áttu skot í stöng og Gústi varði nokkrum sinnum með tilþrifum. Við leiddum engu að síður 1-0 í hálfleik, með einbeittan varnarleik og Halldór Svavar að vopni. Hann skoraði með skalla um miðjan hálfleikinn. Boltinn hrökk í slá og í bakið á markverðinum sýndist mér.

Eftir um 10 mínútur í síðari hálfleik fór að draga af okkur. Þeir jöfnuðu metin og skoruðu svo tvö mörk til viðbótar á skömmum tíma. Mark nr. 2 hefði aldrei átt að standa, vegna grófrar rangstöðu.

Halldór Svavar skoraði svo upp á einsdæmi mark í síðari háfleik og minnkaði muninn en þeir svöruðu í næstu sókn. Þrátt fyrir að spila manni fleiri síðustu 12 mínúturnar náðum við ekki að minnka muninn meira. Halldór fékk gott skallafæri en brást bogalistin.

Með fáeinum skiptimönnum hefðum við ef til vill getað haldið leikinn út. Kobbi og Freyr voru hins vegar með krampa í kálfum, Ásgeir var meiddur á hné, Sævar var tæpur og Hafþór var með leyfar af ælupest. Allir urðu þeir hins vegar að klára leikinn, sem endaði 4-2 fyrir þá.

Í kvöld er æfing og á morgun er leikur á sama stað við sama lið. Nú skulum við fjölmenna og taka almennilega á þeim. Við sáum að við getum alveg lagt þetta lið af velli, með fullskipuðu liði.

Æfingin er klukkan 21.15 í Mosó í kvöld.
Leikurinn er klukkan 20:30 á Framvelli á morgun.

Meldið ykkur í bæði.
Er sjálfur veikur heima með hita og mæti ekki í kvöld.

Sælir drengir.
Það er ljóst að við verðum fáir leikfærir í kvöld. Enn sem komið er hafa bara 9 meldað sig inn. Við verðum að fá svör frá öllum sem fyrst. Verðum líka að biðla til þeirra sem eru slappir eða tæpir að láta sjá sig. Við megum engan mann missa. Endilega heyrið í þeim sem við vitum að eru skráðir hjá okkur. Það væri mjööög gott ef menn eins og Danni, Óli stóri eða Stebbi gætu mætt í þennan leik. Þurfum á öllum að halda.

Þessir eru búnir að boða komu í kvöld:
Víðir
Halldór
Gústi
Njörður
Ásgeir
Haffi Haff
Kobbi
Árni
Freyr
Sævar
Danni (reynir)

BORGA

Þá er komið að því að rukka drengir mínir.

Þeir sem eru í hópnum okkar þetta sumar eru allir á listanum, það er búið að strika yfir þá sem eru búnir að borga :D

Gústi, Andri,  Árni Björn, Ásgeir, Baldur, BjartmarFinnur, Freyr, Garðar, Hafþór Atli, Hafþór Elíasson, Halldór Svavar, Hjörvar, Hróar, Jakob, Kiddi, Njörður, Ottó, Raggi, Sævar, Skúli, Snævar, Víðir og Viktor.

Við erum því 24 í hópnum eins og 10 eiga eftir að borga.  Kannski er ég að gleyma einhverjum (þið segið þá bara frá því í kommentum :D ).

Einnig eiga menn líka eftir að ganga frá gömlum málum.

Þeir sem eiga eftir að borga fyrir Egilshöllina 2008 eru: (3500 kr)
Atli, Freyr, Hróar, Kiddi, Snævar og Stefnir.

Þeir sem eiga eftir að borga fyrir Egilshöllina 2009 eru: (6000 kr)
Andri, Ari, Freyr, Kiddi, Raggi og Stefnir.

Við eigum sem sagt útistandandi 157.000.- en eigum eftir að borga Danna fyrir hallirnar.

Kv. Skúli eigandi

Æfing á þriðjudag klukkan 21:15 á Varmárvelli, að venju.  Melda sig út!

Leikur á miðvikudag við Vængi Júpíters á Framvelli klukkan 20:30.  Melda sig bæði inn og út!

Hugmyndin er að halda þessari venju áfram, þeas. að menn meldi sig út á æfingarnar, en bæði inn og út í leikina.  Það er vegna þess að við þurfum pottþétta mætingu í leikina, og þar sem menn geta dottið í sumarfrí og annað slíkt er ekki gert ráð fyrir mætingu nema menn láti vita.

SMS fylgir þessum skilaboðum.  Ef þú fékkst ekki SMS, láttu mig þá vita og þú ferð á listann.

Var að panta nýja búninga

Jæja drengir ég var að panta búninga og það eru 10 treyjur á leiðinni til okkar.  Þeir sem eiga eftir að fjárfesta í flottu búningunum geta látið mig vita hvaða númer þeir vilja fá (í kommenti hér fyrir neðan).  Þeir sem nú þegar eru komnir með treyju verða að láta vita ef þeirra nafn er ekki við númerið í leikmannaskránni hérna fyrir ofan :D

Treyja, stuttbuxur og sokkar á 5500 :D   gerist ekki betra en þetta verð

« Newer Posts - Older Posts »