Byrjunarlið:
Markmaður: Gústi
Varnarmenn: Guðni, Víðir, Hjalti, Olgeir
Miðjumenn: Kiddi, Steinar, Njörður, Hafþór Atli, Freyr
Framherji: Hafliði
Á bekknum: Kobbi, Hannes, Viktor, Stefnir, Hafþór, Skúli
Leikurinn byrjaði rólega með miðjuþófi og þreifingum. Skellur fengu fyrsta færi leiksins þegar þeir komust í skotfæri rétt innan vítateigs en Gústi varði með tilþrifum. Þegar á leið komust Metrómenn meira inn í leikinn og náðu nokkuð góðum tökum á spilinu og sóttu stíft síðustu 20 mínútur fyrri hálfleiks. Ekki náðist þó að skora þrátt fyrir fjölda færa og helst má þá nefna þegar Steinar Ingi komst einn inn fyrir en skaut hárfínt framhjá markinu. Fyrri hálfleikur gekk nokkuð vel en vantaði herslumuninn að koma boltanum í markið.
Seinni hálfleikur byrjaði eins og fyrri hálfleikur endaði, Metrómenn voru betri aðilinn og sóttu stíft en án árangurs. En og aftur fékk Steinar Ingi dauðafæri eftir frábært samspil okkar manna en eins og áður sá markmaður Skells við kauða. Skellur náði einni skyndisókn í seinni hálfleik sem endaði með fyrirgjöf og skalla af markteig en Gústi bjargaði á síðustu stundu með stórkostlegum tilþrifum og blakaði boltanum yfir markið. Það sem eftir lifði leiks stjórnaði Metró leiknum og fengum við nokkur góð færi en náðu ekki að nýta þau og endaði leikurinn því 0:0.
Liðsheildin var góð og flestir skiluðu sínu nokkuð vel, þeir sem voru hvað mest áberandi og stóðu sig einna best voru Steinar Ingi, Hjalti og Gústi var traustur og hefur aldrei verið betri.
Svekkjandi að ná ekki þremur stigum í þessum leik!