Það var leikið í laugardalnum og var veðrið frábært. Um 20 leikmenn mættu til leiks sem er frábært og höfum við verið með nægan mannskap í allt sumar sem er bara gott.
Við byrjuðum leikinn mun betur en Búri, og var Sævar áberandi langfallegasti maðurinn á vellinum en enginn átti roð í karlinn! Skúli var líka sætur með síða hárið, en þetta er í fyrsta sinn frá því að undirritaður skrifaði undir hjá Metró sem síðhærður maður klæðist Metró treyjunni. Við héldum boltanum mjög vel í fyrri hálfleik, og áttum við nokkur góð færi sem við hefðum getað nýtt betur. Fyrsta mark leiksins skoraði Hafliði Bjarki Úrsus Magnússon eftir að Hafþór Atli sólaði 8-9 manns áður en boltinn barst til Kidda sem gaf boltann fyrir á Hafliða sem drap boltann, og setti hann í fjær. Vel gert hjá drengnum og góður bolti frá Kidda.
Eftir þetta héldum við áfram okkar góða spili og vorum mun meira með boltann, en náðum ekki að koma öðru marki á þá. Í seinni hálfleik færði Búri lið sitt framar og kom það okkur soldið í opna skjöldu en leystum það vel, sérstaklega öftustu menn. Þeir náðu að jafna eftir aukaspyrnu utan af velli – hár bolti barst inn og náði Fúsi ekki til hans og féll niður. Boltinn skoppaði fyrir framan markið og náðum við ekki að hreinsa og potuðu þeir knettinum yfir línuna og staðan 1-1. En við vorum ekki lengi að svara og áttum við nokkur góð færi áður en við komumst í 2-1. Hafliði Bjarki lék upp völlinn, lék á einn varnarmann og stakk honum fallega í gegn á Skúla Andrésson (Faxa), og lagði hann boltann fyrir sig og sett hann í fjær. Vel gert hjá Skúla og Hafliða. Eftir þetta vorum við mun betri og vorum meira og minna með boltann, en náðum þó aldrei að skapa okkur 100% sénsa. Rétt undir lok leiksins komst framherji Búra einn í gegn í dauðafæri, enn eins og svo oft áður varði Fúsi frábærlega með match winner markvörslu og urðu lokatölur 2-1 okkur í vil.
Góður leikur að okkar hálfu, en hefði getað endað í jafntefli. Það þýðir bara eitt, við þurfum að fara koma okkur í fleiri færi og skora fleiri mörk. Aðeins 4 mörk hafa verið skoruð í s.l. þrem leikjum en hefur þó skilað 9 stigum, sem er frábært. Maður leiksins í dag er Hafliði Bjarki Magnússon, skoraði eitt og lagði upp annað. Vann marga bolta á miðjunni og heldur boltanum vel. Einnig mætti velja vörnina sem “Menn leiksins” sem og Fúsa í markinu, en þeir stóðu sig frábærlega. T.d. töluðu menn í stúkunni um hinn “Hvíta Cafú” …
Peace,
Hafþór Atli
þetta er allt nokkuð nákvæmt. lol
ég get ekki farið í klippingu eftir þennan pistil… Faxið er án efa að vekja mikla lukku innan sem utan vallar