Baráttusigur
Við mættum í Laugardalinn í frábæru veðri, tilbúnir í leik gegn Áreitni. Vorum heldur fáliðaðir miðað við síðustu leiki eða 14.
Byrjunarlið:
Vigfús
Guðni-Sævar-Hjalti-Hafþór
Stefnir-Njörður-Víðir-Hafþór Atli-Viktor
Hafliði
Á bekknum byrjuðu Raggi, Gísli og Hannes
Það sást strax þegar liðið gekk inn á völlinn að Sævar var áberandi fallegastur þrátt fyrir mikinn myndarleika í liðinu. Hann átti kannski ekki sinn besta leik en leit vel út allan leikinn.
Við Metrómenn vorum miklu betri aðilinn fyrstu 25 mín., sendum boltann vel á milli manna og sköpuðum ítrekað pláss fyrir Hafþór Atla fyrir utan teig en það var eins og Hafþór hefði tvo hægri fætur í kvöld en eins og Metrómenn vita er það ekki gott. Síðan misstum við aðeins tökin og hleyptum annars ágætu liði Áreitnis inn í leikinn án þess að einhver raunveruleg hætta skapaðist.
0-0 þegar flautað var til hálfleiks.
Héldum fína hálfleiksræðu og ætluð okkur stóra hluti. Og hlupum vel stefndir inn á völlinn.
En svo gerðum bara eitthvað allt annað. Fúsi bjargaði okkur nokkrum sinnum frábærlega áður en við vöknuðum en þá hafði legið á okkur í 20-30 mín. Þá kom að því Hafþór Atli setti þéttingsfastan bolta á markið og hélt keeperinn því ekki og þar fylgdi eftir Þunnur.. nei meina Hafliði, og settann í markið.
1-0 og aðeins 5 mín. eftir. Glæsilegt.
Eins og oft áður vorum við komnir 8 í teiginn eftir markið og var það kannski ekki það besta í stöðunni en við kláruðum þetta og 3 stig í hús og héldum hreinu í fyrsta sinn í langann, langann tíma. Nú er frí framyfir verslunarmannahelgi, og er næsti leikur á móti Team Samba fimmtudaginn 4. ágúst. Tilkynning kemur fyrir leikinn tímanlega.
Maður leiksins: Fúsi. Varði mjög vel allann leikinn, tók mikið af fyrirgjöfum og varði point blank allavega þrisvar sinnum með góðri staðsetningu.
Áfram Metró!
Verður einhver æfing í sumar????
Menn eru að tala um að formið sé svo svakalegt að æfinga sé ekki þörf. Annars var alltaf verið að tala um fimmtudagsæfingar á sparkvöllum og spyr ég hér hvort áhugi sé fyrir slíku?
Ég hef alltaf áhuga á fúsbol. Næsti leikur er að vísu á fimmtudegi, þannig að það verður eitthvað lítið um það í næstu viku. Skúli, á ég að bæta þér við í nýju metrógrúppuna á feisinu?
já þú mátt gera það Viktor. Ef það eru æfingar