Mættum hálf ryðgaðir eftir langt frí í leikinn í gær. Mættum Áreitni í skemmtilegum leik. Inná byrjuðu Gústi, Haffi, Finnur, Ásgeir, Villi, Gæi, Hjörvar, Hnikarr, HaffiHaff, Kobbi og Kiddi, að mig minnir. Hvorki þjálfarinn né aðstoðarmaðurinn voru mættir í upphafi leiks og er það óafsakanlegt.
Leikurinn var varla byrjaður þegar þeir skoruðu sitt fyrsta mark. Þegar ég kom voru þeir að fagna. Skömmu síðar tók Gústi útspark. Hnikarr nikkaði boltanum mjúklega áfram, beint fyrir fætur Kidda sem sett’ann í bláhornið af löngu færi, yfir markvörðinn. Glæsilegt mark.
Nokkru síðar var brotið á Kidda innan teigs og hann skoraði þriðja mark leiksins úr vítaspyrnu. Staðan orðin 2-1 eftir 17 mínútna leik. Mörkin héldu áfram að flæða. Á 26. mínútu skoraði framherjinn þeirra annað mark sitt og jafnaði metin 2-2. Sævar er skráður fyrir næsta marki en það kom á 29. mínútu. Okkur sem stóðum á hliðarlínunni sýndist sem um sjálfsmark væri að ræða en Sævar er svo grannur og flottur að það er ekki víst að við höfum séð hann í loftinu. Þetta var nokkuð laglegt skallamark eftir hornspyrnu. Það var svo Kiddi sem skoraði þriðja mark sitt og fjórða mark okkar í fyrri hálfleik eftir glæsilegt einstaklingsframtak. Hrein þrenna hjá honum.
Síðari hálfleikur var mun daprari. Við misstum völdin á miðjunni og þeir komust óhindrað upp kantana hjá okkur. Ég vil að sjálfsögðu kenna skipulagsbreytingum í hálfleik um, frekar en forminu okkar ![]()
Best að taka fram að við vorum aldrei þessu vant með nóg af varamönnum. Á bekknum byrjuðu Ottó, Skúli, Njörður, Sævar, Hrói, Viktor og Víðir. Allir komu inn á nema Víðir. Sorry kall.
Á 60. mínútu skoraði framherjinn þeirra þriðja markið sitt, sem er algjörlega óásættanlegt. Við það færðist spenna í leikinn. Hnikarr átti skalla í slá og mig minnir að Haffi hafi átt skot í stöng. Ottó átti þrjú dauðafæri en brást bogalistin. Þeir áttu skot í stöng og nokkur ágæt færi. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og unnum við því okkar þriðja sigur í sumar.
Það einkenndi leik okkar í síðari hálfleik að vera óöruggir á boltanum. Allt of oft reyndum negldum við boltanum fram þegar næsti miðjumaður var laus. Á löngum tíma var það svo að djúpi miðjumaðurinn okkar fékk nær aldrei boltann frá vörninni, þó hann væri iðulega frír, og auk þess þeirrar náttúru að finna ávallt samherja. Vegna langra sendinga og hreinsana urðu sóknir okkar oft fámennar og los kom á liðið.
Baráttan var þó góð, að venju. Það er erfitt að horfa fram hjá Kidda við valið á manni leiksins í gær. Hann sá um tvö mörkin alveg sjálfur og gerði auk þess einstaklega vel í fyrsta markinu. Annars var gaman að sjá þá bræður á vellinum í gær; Hnikarr, Hjörvar og Hróa. Allir í toppformi
Við erum fjórum stigum frá playoff en það eru sex stig í pottinum. Við eigum eftir að spila við Fc Fame og Nings. Ef við vinnum báða þá eigum við góðan séns á því að komast í umspilsleikina. Það væri sárabót fyrir tjahh, frekar dapurt sumar.
| 1 | Elliði | 7 | 7 | 0 | 0 | 27:8 | 21 |
| 2 | Vængir Júpíters | 7 | 6 | 1 | 0 | 29:6 | 19 |
| 3 | Kumho | 7 | 6 | 0 | 1 | 28:6 | 18 |
| 4 | Fc Fame | 7 | 4 | 1 | 2 | 15:14 | 13 |
| 5 | Kærastan hans Ara | 8 | 4 | 0 | 4 | 19:19 | 12 |
| 6 | Metro | 7 | 3 | 0 | 4 | 16:26 | 9 |
| 7 | TLC | 8 | 2 | 1 | 5 | 17:22 | 7 |
| 8 | Nings | 7 | 1 | 1 | 5 | 7:24 | 4 |
| 9 | Áreitni | 7 | 1 | 0 | 6 | 10:33 | 3 |
| 10 | Fc Ice | 7 | 0 | 0 | 7 | 11:21 | 0 |
Á morgun, miðvikudag klukkan 20:00 verður æfing á ÍR svæðinu. Það er á alvöru grasi og við borgum ekkert. Þetta er stórt svæði og þar eru ólæst mörk. Ég má hundur heita ef þar verður allt fullt. Reynum að ná allavega einni fjölmennri æfingu!
Á föstudag verður svo póker. Danni á spilapeninga og er til í póker en hann á ekki borð til að spila á. Ég á stórt borð til að spila á en ekkert alltof stóra íbúð. Get haldið þetta heima hjá mér en ef einhver annar bíður sig fram þá er það hið besta mál.
Meldið ykkur bæði í pókerinn og á æfinguna!
Að lokum má þess geta að Gústi vinnur nú að því að finna tíma fyrir hið árlega golfmót Metró. Það verður snemma í september, þegar Ásgeir er laus.
Baldur
Mæti á æfingu og í pókerinn
Kemst ekki á æfingu, mæti í pókerinn nema að konan ákveði annað
kemst ekki á æfingu, landsleikur á vellinum og kemst ekki í pókerinn þar sem er landsleikur einnig daginn eftir!
Mti á æfingu , en kemst því miður ekki í póker sem er alger sind þar sem að ég hef haft yfirburði á pókerborðinu í þeim metrómótum sem ég hef tekið þátt í fram að þessu. Sumir eru bara svo auðlesnir til dæmis Danni hann liftir hægri öxl þegar hann er með góðaspil á hendi , Ottu ræður ekki við brosið ,Baldur halar höfði lítið eitt ,Ásgeir verður flótalegur,og svona get ég haldið áfram en læt þetta gott heita ,
kv
verðið þið ekki að treysta á Kumho menn til að vinna Fame til að eiga mögurleika á umspilsæti ?
Mæti hvorki á æfingu né í póker. Tognaði aftan í læri á einhvern óskiljanlegan hátt þegar ég var tekinn niður þarna í seinni hálfleik í gær. Er að fara austur á hérað um helgina og kemst því heldur ekki í pókerinn.
mæti mjög líklega á æfinguna en það er þó ekki 100%
en ég mæti pottþétt í pókerinn, nánast eingöngu til að blöffa Baldur
Jú Mummi, við þurfum hagstæð úrslit úr Kumho vs. Fame og svo VJ vs. KHA, ásamt því að vinna okkar leiki.
Mæi á æfingu, veit ekki enn með pókerinn
Mæti á æfingu en er ekki viss með pókerinn.
Mæti í bolta. Kemst ekki í pókerinn.
kv.
Gústi.
kemst ekki á æfingu í kvöld
Kemst hvorki á æfingu né póker.