Sævar spyr hvort búið sé að leggja klúbbinn niður. Það er von hann spyrji. Frá því ég kom heim í byrjun júlí hefur ein æfing farið fram. Á hana mættu fjórir eða sex. Við borguðum fyrir æfingaaðstöðu í Mosó, mánuð fram í tímann og tókum þar heila eina æfingu!
Við höfum átt í miklu basli með að ná 11 manns í leikina og fæstir hafa úthald til að klára leikina án þess að togna, fá krampa, lungnaólgu eða kíghósta. Við höfum verið sjálfum okkur verstir, held ég. Bottom line er að hópurinn er allt of lítill, sérstaklega miðað við að fótboltinn hefur ekki verið í forgangi hjá næstum því öllum. Menn sem reiknað var með í upphafi móts hafa verið meiddir, uppteknir eða ekki mætt þegar á reynir. Það hefur því flísast verulega úr hópnum.
Á morgun spilum við á móti FC Ice sem er með færri stig en við, eins og sjá má hér:
| 1 | Elliði | 7 | 7 | 0 | 0 | 27:8 | 21 |
| 2 | Vængir Júpíters | 7 | 6 | 1 | 0 | 29:6 | 19 |
| 3 | Kumho | 7 | 6 | 0 | 1 | 28:6 | 18 |
| 4 | Fc Fame | 7 | 4 | 1 | 2 | 15:14 | 13 |
| 5 | Kærastan hans Ara | 8 | 4 | 0 | 4 | 19:19 | 12 |
| 6 | TLC | 8 | 2 | 1 | 5 | 17:22 | 7 |
| 7 | Metro | 6 | 2 | 0 | 4 | 12:23 | 6 |
| 8 | Nings | 7 | 1 | 1 | 5 | 7:24 | 4 |
| 9 | Áreitni | 7 | 1 | 0 | 6 | 10:33 | 3 |
| 10 | Fc Ice | 6 | 0 | 0 | 6 | 8:17 | 0 |
Nú ættu flestir að vera búnir í sumarfríum og við getum vonandi náð í sæmilega mannað lið. Það eru heilir þrír leikir eftir og það er undir okkur komið hvernig við tökum á þeim. Við getum ákveðið að smala í þessa þrjá síðustu leiki og reynt að sleppa við gefa þá.
EÐA. Við getum reynt að líta á þessa þrjá leiki sem tækifæri til að gera gott úr sumrinu. Ég legg til að við mætum í leikinn á morgun og tökum svo 1-2 æfingar næstu þrjár vikur. Með því móti getur þetta orðið skemmtilegur endir á döpru sumri.
Hér fyrir neðan ÍR (bakvið N1) völlinn er hellingur af ágætu grasi (ekki gervi) og4-6 ólæst mörk til taks. Það eru stundum einhverjir krakkar að leika sér á kvöldin en þetta er yfirleitt laust. Við þurfum ekki að borga fyrir þetta.
Ég legg líka til að við verðum með hitting (golfmót, póker eða hannyrðakvöld) um næstu helgi. T.d. föstudag.
Við erum með 6 stig eftri 6 leiki núna. Við getum hæglega endað með 15!
Eftir tímabilið þurfum við svo að ráðast í ítarlega naflaskoðun og sjá hvernig við getum gert þetta betur.
Á morgun er leikur og ég vona að við náum í fullan 16 manna hóp! Látið vita hvort þið komist eða ekki í leikinn á morgun, sem fer fram hjá HK klukkan 21:00.
Látið einnig vita hvort ykkur líst á að æfa 1-2 þær vikur sem eftir eru, og hverjir væru til í að hittast um helgina og gera eitthvað sniðugt.
Baldur
ég mæti,
Líst vel á ÍR grasið,
Og mun vera meira en til á föstudaginn, með þeim fyrirvara að ég á stóra fjölskyldu og skiptir ástand hennar nokkru.
Flottur pistill Baldur!!!
Ég er að spá í að heiðra ykkur með nærveru minni í fyrsta skiptið í sumar….spá í að taka bræður mína með.
Kv. Ciro
Sælir drengir ég er kominn í frí allavegna þessa vikuna og kannski eitthvað lengur, mæti á morgun
Mæti í leik. Væri auðvitað frábært að fá æfingar í vikunni, reikna með að ég mæti á þær.
Leikurinn er að vísu við FC Ice, en annars er þessi pistill spot on.
Ég er búinn að vera í fríi í rúma viku og búinn að vera súrsaður í áfengi síðan á degi 1, og úthald og útlit eftir því.
Ég mæti samt.
Vel mælt Baldur.
Ég mæti í leik og líst vel á að fara að æfa, það veitir víst ekki af. Og svo er nú kominn tími á golfmót.
Kv.
Finnur
Ég mæti á morgun í leikinn sem er auðvitað á mót FC Ice og er á HK vellinum kl 9. Mæting hálftíma fyrir þann tíma.
Hvað varðar æfingar þá er badmintonið að byrja aftur núna og ég að þjálfa oft í viku en ég mæti eins og ég get á æfingar. Það er þó 1 ljóst hjá mér að þetta verður mitt síðasta sumar. Ég er einfaldlega orðinn of slappur til að halda þetta út. Kannski að aldurinn sé loksins farinn að segja til sín…
Mæti.
Hvernig er það, eigum við ekki ennþá möguleika á því að ná fjorða sætinu??
Ég sé ekki betur!! (veitir það ekki sæti í úrslitum?)
kv.
Gústi.
ég mæti í kvöld
Ég mæti í kvöld, líst vel á æfingar á ÍR svæðinu og enn betur á pókerkvöldið
Er mættur aftur eftir frí, mæti í kvöld og líst vel á að taka æfingar.
Mæti til að horfa á, er ekki heilsuhraustur
Ég mæti í kvöld… er upptekinn á föstudaginn… líst vel á æfingar á ÍR-svæðinu en get engu lofað með mætingu.
Mæti í kvöld , flotta fá æfingar ekki veitir af , það væri flott að hittast og hrista menn saman. svo þarf að fara koma dags á metrogolf
Ég kemst ekki ég er veikur
Sælir
Mæti ekki- meiddur, óvíst hvernig restin á sumrinu verður hjá mér.
Villi kemur.
kemst ekki, en líst vel á æfingar
kemst ekki er að vinna. líst vel á æfingarnar og reyni að komast.
Ég er því miður staddur erlendis, og kemst því miður ekki..