Ég ætla að eyða sem fæstum orðum í þennan blessaða leik. Skemmst er frá því að segja að við drulluðum hressilega upp á bak á mánudaginn, alveg frá því við byrjuðum leikinn, með því að taka miðju og gefa þeim marktækifæri úr því, fram á seinustu mínútu.
Þeir áttu auðvitað mjög góðan leik, en þetta er fjarri því besta liðið sem við höfum spilað við í sumar, og skrifast það á einstaklega lélega frammistöðu af okkar hálfu. Við Gústi bókstaflega gáfum þeim sitthvort markið í fyrri hálfleik og tveggja marka forgjöf er ekki eitthvað sem við getum gefið og ætlast til að vinna leiki.
Næsta leik við FC Ice hefur verið frestað og spilast hann eftir verslunarmannahelgi. Næsta æfing verður á þriðjudaginn 21:15 í mosó. Ég reyni kannski að smala mönnum um helgina á sparkvöll en það kemur betur í ljós þegar nær dregur.
Meldið ykkur fyrir neðan.
Ég mæti.
Ég fer núna í frí til 20 ágúst, en reikna með að mæta sterkur til leiks og heltannaður eftir það…
ég mæti, og eins gott að þú verðir hel-tanaður þegar þú kemur aftur Halldór. því það hefur klárlega verið það eina sem vantar upp á hjá þér í sumar.
Stefnir í rosa mætingu, hvað varðar mína þátttöku þá bera fæst orð minnstu ábyrgðina
mæti.
kv.Gústi
mæti
Sælir drengir!
Leikurinn okkar á móti FC Ice frestast og verður 9. ágúst í kórnum kl 9
hann gæti þó tafist um 30 mín þar sem það er leikið í bikarnum á undan okkur í kórnum
Tognaður aftan í læri, mæti ekki
Sælir.
Stefnir í aðra metþáttöku á æfingu.
Það er búið að bjóða mér í mat í kvöld og ég held ég taki því bara þar sem mætingin er ekki betri en þetta.
Er svo að fara í smá sumarfrí til 9 ágúst.
Mæti beint í leik þá.
kv.
Gústi.
Hjörvar er fyrir norðan og mætir því ekki
er fyrir vestan
ég get prófað að mæta en er tæpur í ökkla.
4 Á ÆFINGU ?
Kemst ekki.
Það er aftur breyting á leiknum og hann verður á mánudeginum 10. ágúst í kórnum kl. 9.
kv. Skúli
Hvenær er næsta æfing?
Enn ein breyting á leiknum því að hann verður á HK vellinum
Mánudaginn kl 9
hvernig er það?
er búið að leggja klúbbinn niður?
engar æfingar,
engar fréttir á síðunni,
ekkert slúður,
enginn poker,
ekkert golfmót,
engin stemmning.
þurfum við ekki að fara gera eitthvað í þessu???