Mættum Vængjum júpíters öðru sinni á miðvikudagskvöldið. Leikurinn verður líklega lengi í minnum hafður.
Byrjunarliðið var svona: Gústi – Sævar Víðir Finnur Viktor – Kobbi Haffi Árni Kiddi Ottó- Halldór.
Líkt og í leiknum fyrir viku vorum við fámennir. Njörður kom seint og var á bekknum fyrstu 22 mínúturnar auk þess sem Hjörvar var í búning en var meiddur og kom lítið við sögu.
Við vorum staðránir í að gera betur en í síðustu viku, þar sem við töpuðum 4-2, eftir að hafa verið yfir í hálfleik.
Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar og þau skiptust á að sækja. Til tíðinda dró á 22. mínútu þegar Halldór Svavar hljóp á eftir sendingu til baka á markvörð þeirra, sem gerði ekki betur en svo að boltinn fór í kviðinn á Halldóri og þaðan í netið. Eða var það varnarmaður sem kixaði?
Metrómenn efldust við markið og hertu tökin. Aðeins fjórum mínútum síðar fékk Kiddi góða sendingu og komst einn í gegn. Það þarf ekki að fjölyrða um afgreiðsluna þar, 2-0 og Metró í góðum málum.
Við þetta vöknuðu Vængirnir til lífsins og settu pressu á okkur. Þeir minnkuðu muninn eftir klaufalegt klafs í teignum en jöfnuðu svo metin með laglegu marki á síðustu mínútu hálfleiksins. Við vorum eðlilega nokkuð svekktir með það.
Um miðjan síðari hálfleik var Halldór Svavar aftur á ferðinni þegar hann með hraða sínum og styrk náði boltanum af varnarmanni, lék á markvörðinn og kom boltanum í autt markið. Frábært einstaklingsframtak, sem fyrr.
3-2 var staðan þar til fjórar mínútur lifðu leiks. Þá höfðu Vængirnir verið mikið með boltann, án þess þó að skapa sér góð færi. Ég man ekki hvernig markið var en þeir allavega jöfnuðu metin á 76. mínútu.
Enn átti eftir að draga til tíðinda. Eftir jöfnunarmarkið geystumst við í sókn og unnum hornspyrnu. Eftir klafs í teignum barst boltinn til Kobba sem átti lélegasta en lúmskasta skot leiksins. Boltinn hreinlega lak í hornið fjær og allt leit út fyrir að Kobbi hefði þarna tryggt okkur sigurinn. Dómarinn sagði þrjár mínútur eftir af leiknum.
Þessar þrjár mínútur voru þær lengstu sem ég hef upplifað. Vængirnir fengu innkast á sínum vallarhelmingi þegar mínúturnar þrjár runnu sitt skeið. Dómarinn leyfði þó eina sókn í viðbót. Leikmaður þeirra fékk boltann á miðjum vellinum og prjónaði sig í gegnum þrjá eða fjóra liðsmenn okkar. Það var ekki fyrr en inn í teig þegar við náðum að stoppa hann. Þar var Finnur að verki og boltinn lak aftur fyrir endamörk. Í stað þess flauta leikinn af benti annars góður dómari leiksins, á punktinn og vildi meina að Finnur hafi gerst brotlegur við knattspyrnulögin. Þessu var mótmælt harðlega enda orkaði dómurinn verulega tvímælis. Úr spyrnunni jöfnuðu þeir 4-4 en leikurinn var flautaður af um leið og spyrnan hafði verið framkvæmd.
Framlenging staðreynd og við nánast án varamanna. Í framlengingunni var bensínið búið. Vængirnir skoruðu mörk á 88. mínútu og annað á 93. Við það tryggðu þeir sér 6-4 sigur í framlengdum spennuleik.
Við vorum að spila þokkalega en höfum átt betri leiki í sumar. Við sýndum mikinn karakter að komast aftur yfir eftir að hafa misst niður tveggja marka forystu. Aftur sýndum við styrk okkar þegar við komumst yfir þegar þrjár mínútur voru eftir. Við vorum ekki nógu klókir síðustu mínúturnar því við hefðum átt að brjóta af okkur eða stoppa manninn löngu áður en hann kom inn í vítateig. Þá hefði leikurinn verið flautaður af, enda tíminn liðinn.
Þetta var sárt en við lærum af þessu. Vængirnir börðust vel og voru heppnir að ná að jafna í lokin. Þökkum þeim fyrir drengilegan leik. Við hefðum svo sannarlega þurft á 2-3 mönnum í viðbót í leikinn. Þá hefðum við klárað dæmið.
Vonandi verður góð æfing á þriðjudag. Við höfum ekki tekið eina alvöru æfingu í allavega mánuð. Það er hræðilegt og það er ljóst að við gætum þurft á liðsstyrk að halda fyrir síðari hluta mótsins. Við erum hreinlega of fáir, miðað við hversu margir forfallast í hverjum leik.
Ég vil hrósa Ottó sérstaklega fyrir mjög góðan leik. Hann bjargaði einu marki og átti líklega sína bestu innkomu í sumar. Halldór var annars maður leiksins að mínu mati. Hann skoraði tvö góð mörk, sem hann bjó sér til úr akkúrat engu, og hljóp allan leikinn eins og óður maður.
Baldur
Góður pistill Baldur minn
Fyrsta markið var þannig að varnarmaðurinn misreiknaði fyrirgjöfina þannig að hann náði henni ekki og boltinn skoppaði á jörðina, í mig og inn…þar kom bjórvömbin sér loksins vel!
Svekkjandi að detta út úr bikar á þennan hátt…var að kíkja á tölfræðina í Utandeildinni og við Metrómenn (við Kiddi) erum báðir ofarlega í markaskorun, bæði í deild og bikar…getum amk verið ánægðir með það