Mættum Vængjum Júpíters sl. miðvikudag og mætum þeim aftur á morgun. Það gekk mjög erfiðlega að ná í lið í síðasta leik. Að lokum, með því að snúa upp á hendur, náðum við 11 manns auk þess sem Danni kom í hálfleik.
Þrátt fyrir að fyrri hálfleikur hafi verið nokkuð strembinn þá óx okkur ásmegin eftir því sem á hann leið. Þeir áttu skot í stöng og Gústi varði nokkrum sinnum með tilþrifum. Við leiddum engu að síður 1-0 í hálfleik, með einbeittan varnarleik og Halldór Svavar að vopni. Hann skoraði með skalla um miðjan hálfleikinn. Boltinn hrökk í slá og í bakið á markverðinum sýndist mér.
Eftir um 10 mínútur í síðari hálfleik fór að draga af okkur. Þeir jöfnuðu metin og skoruðu svo tvö mörk til viðbótar á skömmum tíma. Mark nr. 2 hefði aldrei átt að standa, vegna grófrar rangstöðu.
Halldór Svavar skoraði svo upp á einsdæmi mark í síðari háfleik og minnkaði muninn en þeir svöruðu í næstu sókn. Þrátt fyrir að spila manni fleiri síðustu 12 mínúturnar náðum við ekki að minnka muninn meira. Halldór fékk gott skallafæri en brást bogalistin.
Með fáeinum skiptimönnum hefðum við ef til vill getað haldið leikinn út. Kobbi og Freyr voru hins vegar með krampa í kálfum, Ásgeir var meiddur á hné, Sævar var tæpur og Hafþór var með leyfar af ælupest. Allir urðu þeir hins vegar að klára leikinn, sem endaði 4-2 fyrir þá.
Í kvöld er æfing og á morgun er leikur á sama stað við sama lið. Nú skulum við fjölmenna og taka almennilega á þeim. Við sáum að við getum alveg lagt þetta lið af velli, með fullskipuðu liði.
Æfingin er klukkan 21.15 í Mosó í kvöld.
Leikurinn er klukkan 20:30 á Framvelli á morgun.
Meldið ykkur í bæði.
Er sjálfur veikur heima með hita og mæti ekki í kvöld.
Mæti ekki í kvöld
Reikna með að mæta í leik á morgun
Kemst í kvöld, ekki á morgun
Hentar mér ekki að spila á miðvikudögum í augnablikinu!!!
mæti ekki í kvöld og er enn að jafna mig í bakinu og tel mjög líklegt að mæta á morgun – maður vælir ekki annan leikinn í röð!!!
Mæti og mæti.
og sendi sms um leið og ég kemst heim í símann góða.
Mæti í hvort, er úti á landi í sumarfríi
mæti og mæti
Ég mæti í hvorugt því miður. Verð að væla annan leikinn í röð
Mæti í kvöld ef við verðum 10 eða fleiri á æfingu, annars tekur því ekki að mæta
veit ekki enn með kvöldið, en kem á morgun.
er líklegri en ekki á æfinguna ef mæting næst.
Kemst ekki í kvöld, mæti á morgun!
Strákar mínir, hættið nú að setja einhverja fyrirvara á að náist hitt eða náist þetta. Þangað til 10-15 manns hafa meldað sig út hérna náum við allavega 10 manna bolta.
That said, eins og þeir segja á útlenskunni, þá finnst mér frekar leiðinlegt hvað mætingin á æfingarnar er sett aftarlega í forgangsröðina. Það eru teljandi á fingrum annarrar handar skiptin sem ég get ekki mætt í sumar.
Takið með ykkur aukamenn sem getið. Ég var skyndilega boðaður í mat, og komst því ekki heim til að ná í símann.
Mæti í bæði. Er samt sammála Víði, mæti ef það verða fleiri en 10, sýnist ekki stefna í það.
Spurning um að fara bara út að skokka:)
Ég er ekki orðinn klár ennþá, þannig að ég mæti í hvorugt. Kem þó til að horfa á leikinn annað kvöld, þannig að það er eins gott að þið standið ykkur
ég mæti og reyni að taka einhvern með mér
Ætla einhverjir að mæta, fer frekar í ræktina ef að við erum 7
Nenni ekki að mæta ef við verðum bara sjö. Ætla þá frekar að vera heima og strjúka kerlingunni
kemst í hvorugt vegna meiðsla
Mig langar bara að skjóta því að að það skiptir engu máli hvernig skiptingum er háttað í leikjum eða hvaða leikkerfi er spilað ef þið nennið svo ekki að æfa á milli leikja.
Það þarf að koma meira inn félagslegu hliðinni hjá ykkur og þið verðið að hafa meira gaman af þessu.
Hvernig fór með Pókerkvöldið sem Danni ætlaði að halda?
vil þakka Kobba, Viktori og Víði fyrir frábæra æfingu í kvöld.
við vorum FJÓRIR og hlýtur það að vera met
nú vona ég bara að við náum minnst 15 manns í leik á morgun.
en miðað við það sem komið er inn af meldingum er það kannski óskhyggja!
Er ennþá á ferðalagi úti á landi og kemst því miður í leikinn.. mæti ferskur í næsta leik…
kv Andri
Hmm. Einhverra hluta vegna kom kommentið ekki sem ég setti í gær.
Ég mæti í kvöld, allur lurkum laminn.
Mætti ekki í gær vegna eymsla í flestum útlimum.
Strákar mínir eins og staðan er núna erum við ekki með stærri hóp en þetta (því miður). Ég legg því til að menn komi með aukamenn með sér á æfingar ég sé ekki neitt að því.
Eins og staðan er núna eru bara 14 búnir að borga þannig að það er erfitt að ætlast til þess að það séu alltaf 10+ á æfingum
. Drögum með okkur aukamenn
9 búnir að melda sig
Árni Björn
Kristinn Jóh
Viktor
Kobbi
Víðir
Sævar
Njörður
Gústi
Ottó
Hvað með menn eins og Halldór Svavar, Haffi Haff, Haffi, Villi, Finnur, Gæji, Baldur, Óli stóri. Er ég að gleyma e-m???
Hver stjórnar í kvöld?
Ég mæti að sjálfsögðu!
Finnur er í ferðalagi en mætir í kvöld.
kv.
Gústi.
Því miður drengir þá kemst ég ekki, lítur út fyrir að ég spili eitthvað lítið í sumar
enda ekki búinn að borga
Ég kemst ekki, þessi öklameiðsli eru enn að hrjá mig ég þarf að fara láta kíkja á þetta helvíti
borga á eftir, gleymi því alltaf :/
Ég er að ná mér af veikindum og er meiddur á ökkla þess utan. Villi er úti á landi og bað fyrir kveðju.
Gæi er úti á sjó og verður fram að verslunarmannahelgi, eins og ráð var fyrir gert.
Get mætt klukkan 8, stillt upp liði og haft umsjón með skiptingum, ef áhugi er fyrir.
Baldur þú mætir
Hlakka til að lesa mat Baldurs á svekkjandi tapi okkar í gær…
það ætti að verða áhugaverð lesning frá meistara Baldri.
nú bíður maður bara spenntur.
hva á ekkert að gerast í pistlamálum!!!?????