Sælir drengir.
Það er ljóst að við verðum fáir leikfærir í kvöld. Enn sem komið er hafa bara 9 meldað sig inn. Við verðum að fá svör frá öllum sem fyrst. Verðum líka að biðla til þeirra sem eru slappir eða tæpir að láta sjá sig. Við megum engan mann missa. Endilega heyrið í þeim sem við vitum að eru skráðir hjá okkur. Það væri mjööög gott ef menn eins og Danni, Óli stóri eða Stebbi gætu mætt í þennan leik. Þurfum á öllum að halda.
Þessir eru búnir að boða komu í kvöld:
Víðir
Halldór
Gústi
Njörður
Ásgeir
Haffi Haff
Kobbi
Árni
Freyr
Sævar
Danni (reynir)
Ökklinn small á réttan stað rétt áðan svo ég kem í kvöld
ég kem ekki, er fastur í neðsta hryggjarlið og þarf að hvíla e-ð, reyni samt að kíkja og hvetja okkar menn áfram…
ég veit að stefán kemst ekki
áfram Metró
Leikurinn byrjar kl 20:30 er það ekki mæting kl 20
Líst ekki á þetta í kvöld , er sjálfur ekki 90mín maður
þú ert heppinn Víðir, leikurinn er bara í 80 mín, hlýtur að meika það…….
Eru ekki fleir að detta inn ?
Við verðum bara að taka á þessu og spila skynsamlega. Danni kemur ekki fyrr en eitthvað er liðið á leikinn.
Reyndum að fá frestun en það gekk ekki.
Víðir
Halldór
Gústi
Njörður
Ásgeir
Haffi Haff
Kobbi
Árni
Freyr
Sævar
Danni
Baldur
12 stk. Nú það er þá fótboltalið
Kemur ekki örugglega einhver með aukatreyju á eftir?
Ég tek aukatreyju. Ég er ekki leikfær. Ég haltra um.
Villi ætlar hins vegar að koma og taka fyrri hálfleikinn og láta börnin passa sig sjálf.
Ég kemst ekki.
Fastur í vinnu
Engin umfjöllun um leikinn Baldur?
já hvernig er það, maður kíkir hvern einasta dag í leit af umfjöllun.
Er komin í sumarfrí, verð ekkert með fram yfir verslunnarmanna helgi.
Kveðja
Er einhver æfing í kvöld ?
Ef svo er þá kemst ég amk ekki því miður…en ég er game í leikinn á morgun
Æfing í kvöld og leikur á morgun. Baldur ætlar að krota eitthvað smotterí á vegginn á eftir.