Margir höfðu orð á því að það vantaði sárlega pistil eftir seinasta leik, en hefð hefur myndast fyrir því að Baldur skrifi pistlana eftir leikina, enda atvinnupenni og klárar einn pistil á nokkrum mínútum. Hann er úti á landi sem stendur og því fellur þetta verk á mig í dag.
En hvað um það. Metrómenn öttu kappi við TLC á Ásvöllum í kvöld í úrvalsfótboltaveðri, blankalogn og skýjað. Nokkrar breytingar urðu á liðinu frá seinasta leik, en byrjunarliðið var svona:
Sævar, Finnur Hjörvar og Viktor
Kiddi, Andri, Njörður og Haffi Haff
Freyr
Halldór
Á bekknum voru: Árni, Ásgeir, Haffi, Ottó, Skúli, Víðir
Einnig sáust á hliðarlínunni sjaldséðir fuglar, sem mættu endilega láta sjá sig oftar, Danni og Hnikarr.
Við byrjuðum leikinn með miklum látum og skemmst frá því að segja að TLC vissu ekkert í hvorn fótinn þeir ættu að stíga fyrstu 15-20 mínúturnar. Eftir um 10 mínútna leik pressaði Halldór á varnarmann TLC sem kixaði og fékk boltann í höndina, óviljandi en hafði mjög líklega áhrif á leikinn og því réttilega dæmd vítaspyrna, sem Halldór skoraði svo sjálfur úr. Fleiri færi litu dagsins ljós en inn vildi boltinn ekki. TLC náðu síðan að komast inn í leikinn, en fengu þó lítið af hættulegum færum, þá helst úr nokkrum aukaspyrnum fyrir utan teig sem ekkert varð úr.
Síðari hluta fyrri hálfleiks náði TLC að jafna leikinn eftir varnarmistök, þar sem Sævar hafði unnið boltann en gaf síðan of stutta sendingu á Hjörvar sem TLC-liðar komust inn í, og endaði með marki.
Jafnræði var með liðunum fram að hálfleik og voru það hálfleikstölur, 1-1.
Seinni hálfleikur byrjaði nokkurn veginn eins og sá fyrri endaði, bæði lið fengu nokkur færi, en TLC höfðu samt tekið stjórnina á leiknum. Um miðjan seinni hálfleik náðu TLC-liðar sókn þar sem að framherji þeirra fékk að rekja boltann nánast að vild upp völlinn þar til hann kom sér í skotfæri rétt við vítateiginn og setti boltann örugglega niður í vinstra hornið. Við markið kom smá panikk á okkur og ekki tók nema örfáar mínútur fyrir TLC að bæta við þriðja markinu.
TLC hafði síðan stjórn á leiknum þar til um 5-10 mínútur voru eftir, en þá var komið að þætti Kidda og Halldórs, þar sem þeir nánast einsamir drógu fleyið í land. Gústi greip boltann eftir fyrirgjöf, kom honum á Árna sem rak hann upp völlinn og kom honum í hornið. Þaðan kom boltinn á Andra, sem gaf hælsendingu í gegnum klobbann á varnarmanni TLC á Kidda, sem skoraði örugglega og minnkaði muninn í 3-2. Örfáum mínútum síðar jafnar Halldór eftir að hafa fengið boltann rétt fyrir framan miðju og fer í gegnum 2-3 varnarmenn áður en hann skorar, einstaklingsframtak af bestu gerð. Í næstu sókn á eftir sýnir Kiddi annað eins einstaklingsframtak, fær boltann vinstra megin á vellinum, snýr af sér varnarmanninn með miklum krafti og leggur boltann í fjær þar sem hann skoppar í stöngina og inn, og þar með lauk leik með hreint frábærum lokakafla.
Allt annað var að sjá liðið í dag heldur en í seinasta leik, mun meiri barátta og þó svo við fengum á okkur 3 mörk í kvöld, var vörnin mun betri. Þó gæti þessi leikur reynst okkur dýrkeyptur þar sem 3 lágu í valnum, Andri, Hjörvar og Sævar og aðeins vika í næsta leik á móti Vængjum Júpiters.
3 menn báru af í þessum leik, en það voru Gústi, Halldór og Kiddi. Þó svo að Gústi hafi fengið á sig 3 mörk, átti hann frábæran leik, og varði þónokkur skot þegar þeir voru í stöðunni 3-1 og kom í veg fyrir að þeir næðu að kafsigla okkur. Núna er vonandi að við náum upp góðri stemningu aftur með þessum leik og stöndum okkur vel í sumar.
Áfram Metró!
Glæsilegt drengir til hamingju með sigurinn!!!!
Frábær sigur í gær…
Gleymdist að minnast á að Árni Björn var á bekknum og átti síðan stóran þátt í fyrra markinu hans Kidda
Ekki má nú heldur gleyma þætti þjálfarans sem gerði strax taktíska breytingu í stöðunni 3 – 1 sem skilaði sér í beyttari sóknarleik. ( þ.e. þegar hann setti Ottó inná)
Hvenær er næsta æfing???
Fimmtudag ?
Flottur leikur í gær drengir, ávallt gaman að taka svona leiki
Varðandi æfingu í vikunni þá er hún frekar slæm hjá mér, væri einna helst á sunnudaginn sem ég kemst!
kv.
Gústi.
Ég ætla ekki að bæta neinu við sem Hnikarr skrifaði, þarf ekki.
En Finnur og Andri eiga hrós skilið einnig,
Andri hljóp og hljóp eins og carl johnson á sterum og Finnur var ótrúlega lúmskur að brjóta á mönnum á réttum augnablikum, og fékk ekki einu sinni spjald í leiknum.
Svo var nokkuð gott þegar Sævar fékk gula spjaldið fyrir peysutog löngu eftir að hann var sestur á bekkinn.
Halldór: gleymdi Árna óvart, var ekki með mætingarlistann við höndina og annað augnlokið var farið að síga þegar ég kláraði þetta í nótt. Lagað.
Hrói: æfing á fimmtudag er spurning, það voru margir lemstraðir eftir leikinn auk þeirra þriggja sem meiddust. Helgin gæti hentað betur. Sjáum til í kvöld.
Hurru já, ég gleymdi að minnast á eitt í pistlinum. Sjáið hvað það borgar sig að sleikja upp þjálfarann. Það verður samt að vera smooth.
ég vil fyrst og fremst þakka sjálfum mér þennan sigur, enda unnum við 4-1 þegar ég var inná en töpuðum 2-0 meðan ég fékk viktor tilað koma inná fyrir mig í smá stund;) En svona fyrir utan það, þá voruð þið allir ágætir;)
E úti á landi kem í bæinn sunnudag
Djöfull hlýnaði mér við þennan lestur. Kem suður, eftir tveggja vikna vinnutörn, um helgina.
Þetta var góður baráttusigur og allir skiluðu sínu! Halldór, Kiddi og Freyr voru áberandi í leiknum og einnig Andri sem var besti maður vallarins á móti Áreitni.
Gæi var líka með strákar mínir;) en magnaður sigur….
Þetta var flottur baráttusigur og við sýndum mikinn karekter að klára þetta í lokin. Varðandi næsta leik þá er ég að fara í sumarfrí í Hólminn og verð þar út næstu viku.
Glæsilegur Sigur hjá okkur
varðandi næsta leik þá verð ég í sumarbústað og kemst ekki en ég kem ferskur í næsta leik…..
kv Andri Jó