Skemmst er frá því að segja að við töpuðum þessum leik. Eftir 0-0 hálfleik, fengum við á okkur 2 hræódýr mörk. Við náðum að jafna leikinn bara til að fá á okkur þriðja ódýra markið og jafna leikinn aftur, bara til að fá á okkur fjórða ódýra markið og tapa þar með leiknum.
Þannig má segja að vandamálið hjá okkur í þessum leik sem og öðrum leikjum, er ekki að skora mörk, heldur að fá á okkur allt of mörg mörk og hleypa andstæðingum okkar inn í leikina. Höfum í raun gert þetta seinustu 3 leiki, þó svo við náðum að klára leikina tvo á undan. Vonandi verður því viðsnúningur á því sem fyrst.
Nú verður bara að gyrða í brók, og næsti leikur er á þriðjudaginn á móti TLC. Við þurfum toppmætingu og helst sigur á móti þeim ætlum við okkur að berjast í efri hluta deildinarinn í sumar.
Meldið ykkur bæði inn og út.
Ég mæti.
ég mæti
ég mæti nema nýburinn minn verði með mótmæli
mæti.
mæti
Mæti í bleiku.
Verð að benda á að þetta var efnilegt leikskipulag sem Skúli lagði upp í leiknum. Þetta var alveg að gera sig, á pörtum.
æfing á morgun??
Ég mæti og ætla sjálfur að vera í bleiku
Aldrei að vita nema maður skelli sér inná
En Hjörvar var nú bara í sókninni í þessu leik og verður færður í vörnina aftur í næsta leik
Ætlar þjálfarinn ekki að hafa æfingu annað kvöld? Hlýtur nú að þurfa að taka eina æfingu eftir svona afhroð eins og síðasti leikur var.
sammála hnikari alveg spurning með æfingu á morgun.
en ég mæti í leikinn á þriðjudaginn
Ég er game á þriðjudaginn…
ætlar Hnikarr að láta sjá sig!!
Ég mæti
Ég mæti
Ég væri vís til að mæta á æfingu ef hún yrði. Annars kíki ég bara á ykkur á þriðjudaginn og lem ykkur áfram.
Á ekkert að greina frá markaskorurum síðasta leiks?
Ottó var með miklar yfirlýsingar fyrirfram varðandi eign framlag…spenntur að frétta hvort það rættist!
Mæti
mæti
naa Halldór, ég ákvað að hvíla þennan leik. Sat bara á bekknum og hvíldi lúin bein, gerði eina hjólhestaspyrnu samt að ganni svona á hliðarlínunni.
Minnir að Kiddi hafi verið með 2 og Freyr 1.
Held samt að annað markana hans Kidda hafi skrifast á Hjörvar. En það var markið þar sem Hjörvar átti stoðsendinguna fyrir markið.
leiðréttið mig ef ég fer rangt með mál.
Mæti
kemst ekki, er að vinna.
er tæpur
Mæti
mæti
Er ekki leikurinn pottþétt á Ásvöllum kl 21:00?
Jú 21 á Ásvöllum. Hnikarr ætlar að mæta með búninginn sinn þar sem það virðist ekki vera vanþörf á því
Ég get sennilega tekið Árna Björn með mér líka – fínt að fá hann inn á miðjuna…
Hann er skráður og má því spila. Skv. mínum bókum ætlaði hann að vera með í sumar.
Andri Mætir… og eg er að spá í að setja 1 mark á þetta í kvöld
Sælir
Hef verið utan bæjar síðustu vikur. Ég mæti í kvöld og spila ef þess verður óskað.
reikna með að koma á pallana