Metrómenn brutu blað í bikarsögu félagsins þegar liðið komst áfram úr fyrstu umferð, eftir frækilegan 4-2 sigur á FC Keppnis í kvöld. Aldrei áður hefur liðið komist upp úr fyrstu umferð.
Inná í kvöld byrjuðu Gústi – Andri, Ásgeir, Finnur, Haffi – Sævar, Gæi, Haffi, Guðni, Freyr – Bjammi.
Eftir um tíu mínútur komu Halldór og Kiddi inn fyrir Bjamma og Guðna, en þeir voru seinir fyrir.
Við byrjuðum leikinn ágætlega. Bjammi þreytti varnarmennina með öflugum hraðabreytingum (úr lulli í stopp) þannig að Halldór fékk svigrúm til að skora úr hjólhestaspyrnu stuttu eftir að hann kom inn á. Ég var reyndar beðinn að koma því til hans að vera ekki að sýna sig svona í leikjum. Við getum þetta allir. Markið kom eftir fyrirgjöf en áður hafði verið hornspyrna.
Fljótlega eftir fyrsta markið skoraði Kiddi laglegt mark með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið, áður en Halldór skoraði þriðja markið með þrumufleyg fyrir utan teig. 3-0 í hálfleik og við máttum vel við una.
Í hálfleik ræddu menn um að halda áfram að spila okkar bolta og gefa ekki tommu eftir. Allra síst að við myndum hleypa þeim inn í leikinn. Það var eins og við manninn mælt. Ekki voru liðnar nema um 15 mínútur af síðari hálfleik þegar þeir voru komnir inn í leikinn, 3-2, og sóttu sannarlega í sig veðrið. Halldór Svavar braut þau veður hins vegar á bak aftur þegar hann skoraði fjórða og síðasta mark leiksins úr vítaspyrnu eftir að leikmaður þeirra handlék knöttinn innan teigs. Þar með fullkomnaði hann þrennuna og annar sigur liðsins í röð staðreynd.
Inná komu auk þeirra sem áður voru taldir; Viktor og Víðir og stóðu sig með prýði. Hjörvar, Njörður og Raggi eru meiddir.
Mér fannst við oft á tíðum gera okkur sjálfum erfitt fyrir. Bakverðirnir mættu stundum leita meira inn á miðjusvæðið með lága bolta í stað þess að senda erfiða bolta upp í horn. Við mættum stundum færa liðið hægar fram völlinn og nota til þess fleiri menn. Þannig verða hlaupin minni okkar megin og meiri ró færist yfir liðið. Við eigum ekki að hika við að spila boltanum til baka á miðjumennina eða varnarmennina. Þetta á jafnt við alla og er mín skoðun.
Þrátt fyrir að erfitt sé að ganga fram hjá Halldóri Svavari við val á manni leiksins, þá ætla ég að leyfa mér að útnefna Finn mann leiksins að þessu sinni. Finnur kom sterkur inn í miðvarðastöðuna í kvöld og lék allan leikinn. Hann lét vel finna fyrir sér og hleypti aldrei bolta og manni samtímis fram hjá sér. Finnur steig vart feilspor í leiknum og svaraði virkilega vel fyrir sig eftir langa setu á bekknum í síðasta leik. Þannig á þetta að vera. Ég vil einnig geta þess að Freyr barðist eins og ljón allan leikinn og hljóp sem þindarlaus væri.
Hef þetta ekki lengra að sinni.
Baldur
Sælir drengir.
í ljósi aðstæðna þá ætla ég segja þáttöku minni með Metró í sumar lokið.
Gangi ykkur vel, en ég mun vonandi kikja aðeins á leik í sumar
Meiddiru þig eitthvað í kvöld, Bjammi?
Verð að taka undir með Baldri um að við erum alltof mikið að leita að erfiðu leiðini í staðinn fyrir að reyna að láta boltann ganga á milli okkar.
Mér finnst mikið frekar hægt að rétlæta það að missa boltann þegar menn eru að reyna að spila honum stutt frekar en að gefa einhverjar óskasendingar framm sem eru í 90% tilfellum ekki að skila neinu, hættulegust sóknirnar okkar eru þegar við látum boltann ganga og færum okkur framar á völlinn þannig og erum fleiri en 2 að sækja á vörnina hjá þeim. Þótt að Halldór og Kiddi séu fljótir þá er erfitt fyrir þá að þurfa að elta boltann allann leikinn og eiga svo eftir 2 varnarmenn þótt þeir nái boltanum og langflestir leikmenn okkar ennþá við miðju.
Við erum með fullt af góðum strákum í þessu liði sem geta spilað flottann bolta en það segir sig nokkuð sjálft að þeir nýtast ekki eins vel þegar boltinn er alltaf í loftinu.
Allavegna hefur mér fundist það vera að skila mestum árangri þegar við látum boltann ganga og þurfum ekki að vera alltaf að spretta á eftir honum.
Glæsileg úrslit.
Algjör óþarfi hjá Halldóri að vera eitthvað að monnta sig, bara taka það á kassann og sparka honum svo inn.
Hann má samt gera þetta nokkrum sinnum í viðbót áður en hann hættir því.
Heh fín umfjöllun…Baldur, 3 mörk og 1 stoðsending og neitar að velja mig…ég er hættur!
Hehe segi svona – Finnur var mjög solid í gær og á þetta fyllilega skilið – hann mætti líka á réttum tíma;-)
Skemmtilegt að vera komnir áfram í bikarnum samt, eins og spilamennskan var í fyrri hálfleik þá ættum við að standa í flestum liðum held ég…
Ég afboða mig samt hér með á æfingu í kvöld, næsta leik og næstu æfingu, ætla aðeins að skreppa norður…gangi ykkur vel!
Áfram Metró!
Ps. fagnaði sigrinum í gær eins og sannur metró-gaur og fór beint í ljós
Ég kemst ekki á æfingu í dag, en kemst á fimmtudaginn.
Góður pistill og fínn leikur. Skipulagið og spilamennskan verður betri með hverjum leik.
Næsti leikur er við Áreitni sem er líklega lakasta liðið í riðlinum miðað við fyrstu úrslit. Það passar því ágætlega að Halldór fái frí í þeim leik en vil um leið biðja menn að fara huga að næstu tveimur leikjum þar á eftir við TLC og vængina. Þá er mikilvægt að hafa allra sterkasta hópinn, plana fríið sem fyrst þannig að menn geti mætt!!!!!
Þá á ekki að heyrast afsakanir á borð við golfmót, í mat hjá tengdó, sumarbústaðarferð, grillveisla, afmælisveisla, leikhús, eða er á vakt(redda því núna!), þunnur, fullur, fjallganga eða önnur eins vitleysa.. látum þetta fá smá forgang!!
Rétt hjá Nirði… Við vitum allir dagsskrána fram að 15 júlí.
Ég mun til að mynda missa af einum leik í sumar, sem verður á móti Vængjunum, en ég verð þá hinum megin á landinu. Aðra leiki mun ég spila.