Mættum Kærustunni hans Ara á miðvikudaginn í blíðskaparveðri í Kórnum. Inná byrjuðu Gústi – Haffi, Hjörvar, Ásgeir, Andri – Kobbi, Garðar, Njörður, Hafþór, Kiddi – Halldór.
Við byrjuðum, eins og yfirleitt áður, illa. Fengum á okkur mark strax eftir 5 mínútur eða svo. Man ekki glöggt hvernig það atvikaðist en við vorum allavega ekki nógu áræðnir.
Bættum okkur helling þegar leið á hálfleikinn. Mig minnir að við höfum verið 2-1 yfir í hálfleik með mörkum frá veikum Halldóri Svavari og Kidda. Gátum vel við það unað. Mikil barátta skilaði því.
Í síðari hálfleik lékum við mun betur, ef frá eru taldar síðustu 10 mínúturnar. Þeir fengu bara 1-2 færi í hálfleiknum en við þónokkur. Andri og Hafþór fengu til dæmis kjörin færi og Kiddi fékk eitt á móti markverði, líkt og Halldór. Það var svo Kiddi sem skoraði þriðja markið áður en þeir minnkuðu muninn í 3-2 þegar stutt var eftir. Þar við sat þrátt fyrir að örlað hafi á örvæntingu síðustu mínúturnar. Auk þeirra sem byrjuðu komu Raggi, Freyr, Finnur, Sævar og Viktor við sögu í leiknum, mis mikið.
Nýtt fyrirkomulag á þjálfaramálum og meiri barátta skilaði sigrinum að þessu sinni. Skúli stóð sig með prýði í stjórnuninni og menn verða greinilega að sýna getu sína á æfingum ef þeir ætla í byrjunarliðið hjá harðstjóranum. Það er vel.
Mér fannst liðið í heild leika vel. Hjörvar fór mikinn í vörninni og það er mikill styrkur af honum þar. Miðjan var öflug þegar leið á leikinn og framherjar sprækir. Mér fannst Kiddi bestur okkar manna í leiknum. Hann gerði fá mistök, var mikið í boltanum og hélt honum einkar vel. Þá var hann mjög duglegur að verjast einnig og skoraði tvö góð mörk. Hann var að mínu mati maður leiksins.
Næsti leikur er á mánudaginn en það verður bikarleikur. Hann ætlum við að vinna en það er nauðsynlegt að menn boði sig hér í leikinn. Látið vita hvort þið mætið eða ekki! Höldum sigurgöngunni áfram.
Baldur assistant.
Ég get mætt með föt í leikinn en læt öðrum eftir að spila ef nóg verður af mannskap. Vil mæta á æfingu áður en ég spila.
Mæti, og kem með ístruna með mér
Ég mæti, líka með ístruna mína
Ég vil meina að góð barátta hjá okkur öllum, gott skipulag á liðinu, góður talandi og mikill vilji hafi skilað þessum sigri hjá okkur.
Ég kemst í leikinn og kemur ekkert annað til greina en að halda áfram sigurgöngunni…
mæti
Ég þarf að mæta á fund kl. 7 á laugardalsvelli á morgun og kem um leið og hann er búinn. Það gæti verið að ég þyrfti að láta aðstoðarþjálfarann um það að stilla upp liðinu í byrjun. En ég mæti á hliðarlínuna og spjalla við ykkur.
kv. Skúli
Ég mæti á staðinn en finnst ólíklegt að ég spili.. lítur út fyrir að ég sé með brákað rifbein. Ég bíð mig fram að stilla upp smá leikkerfi í hornspyrnum ef menn vilja?
Ég mæti væntanlega en ég get ekki spilað vegna ökkla meiðsla
mæti
Ég er að verða veikur, en mæti þangað til annað kemur í ljós.
er mánudagsveikin að byrja Viktor?
En ég mæti á morgun
Ég mæti ekki þar sem ég er á æfingu á þessum tíma…
Ég mæti …. klukkan hvað er þetta annars ??’
reikna fastlega með mætingu
mæti
Ég mæti, en verð að sjá til með spilamennsku sökum meiðsla sem ég nældi mér í í síðasta leik.
leikurinn byrjar kl 19:30 Andri
en við skulum ekki mæta seinna en 19:00 svo hægt sé að fara yfir leikskipulag áður en leikur hefst.
Ég mæti
Njörður komdu fagnandi! Væri flott að hafa það á hreinu hvernig við útfærum föst leikatriði.
Reyni að komast
Ég kemst ekki.
Mæti
Kemst ekki, gangi ykkur vel!!
Hrói, þú reynir ekkert, þú kemur! Hefur 3 tíma til að redda þér.
Freyr kemur.
Ég er ekki farinn austur ennþá og get komið í galla og fyllt upp á bekkinn ef menn vilja, þið segið bara til.
Endilega mættu Guðni.
Ég kemst ekki. kvöldvakt þessa vikuna.
hvernig fór ?