Lékum gegn Elliða í kvöld í fínu veðri og góðum aðstæðum.
Inn á byrjuðu
Gústi,
Haffi, Hjörvar, Ásgeir, Sævar
Hafþór, Njörður, Freyr, Kobbi
Halldór og Kiddi
Seint í fyrri hálfleik komu svo Viktor inn á (lék í 50 mín), Finnur (45 mín).
Í hálfleik bað Freyr um skiptingu og Hafþór Atli kom út.
Þessir komu inn á í síðari hálfleik: Skúli (lék 10-15 mín), Andri (30 mín), Raggi (30 mín), Víðir (20 mín) Ottó (10-15 mín), Gummi (ca. 10 mín).
Nítján fengu að spreyta sig í kvöld, af þeim tuttugu sem mættu klæddir.
Fyrri hálfleikur var ágætur af okkar hálfu. Við vorum mjög óheppnir að skora ekki. Kiddi átti hörku skalla í slá og átti auk þess eitt færi einn á móti markmanni. Hjörvar átti góðan skalla sem fór naumlega framhjá. Ásgeir gerði ein slæm mistök snemma leiks sem kostuðu mark en annars áttu þeir varla skot að marki, þó nokkrum sinnum hafi skapast hætta okkar megin vegna slæmra sendinga úr vörninni og útsparka. Við sóttum í okkur veðrið eftir því sem leið á hálfleikinn en tókst ekki að skora þrátt fyrir nokkur ákjósanleg færi.
Eftir um tíu mínútna leik í síðari hálfleik fengum við á okkur annað mark. Ég man ekki hvernig það atvikaðist en í kjölfarið var úr okkur allur vindur. Eflaust má að hluta til rekja það til ótímabærra skiptinga en mér var falið það hlutverk að skipta mönnum inn á í leiknum. Við það naut ég aðstoðar Skúla og fleiri eftir atvikum.
Leikurinn endaði 5-0. Það gefur ef til vill rétta mynd af síðasta hálftímanum en ekki fyrstu 50 mínútunum, en við vorum beinlínis óheppnir að vera undir í hálfleik.
ÓÁNÆGJA EFTIR LEIK
Eftir leikinn ræddu menn saman inn í klefa og voru ósáttir. Menn voru ósáttir við að nýir leikmenn, sem menn vissu vart hvað hétu, kæmu inn og spiluðu í fyrsta leik. Það tek ég á mig, þar sem ég reyndi að haga skiptingum þannig að flestir fengju einhverjar mínútur. Þær raddir voru háværar inn í klefa að við yrðum að gera það upp við okkur hvort við vildum spila á besta mögulega liðinu hverju sinni, eða spila þannig að sem flestir fái að spreyta sig. Hjá þeim 10-15 mönnum sem voru inn í klefa eftir leik vildu flestir þeir sem tóku til máls að besta liðið yrði ávallt inn á vellinum. Lykilmenn kæmu ef til vill út til að hvíla sig í fáeinar mínútur, en yrðu svo settir aftur inn hið fyrsta. Mér heyrðist meirihluti vera fyrir því fyrirkomulagi en veit þó að menn sem eru á öndverðum meiði héldu sig til hlés í klefanum.
Menn virtust sammála um að rangar ákvarðanir í skiptingum hafi orðið til þess að leikurinn tapaðist með þessum mun. Ég tek það alfarið á mig. Ég ítreka það hins vegar sem ég sagði í klefanum að ég er ekkert æstur í að sjá um skiptingar, jafnvel þó ég sé ekki að spila. Ástæða þess að ég ákvað að mæta ekki í búning í kvöld er einföld. Ég sá að í hópnum voru nógu margir leikmenn sem eru í betra formi en ég, og eru því betur til þess fallnir að vera inn á vellinum. Ég mæti ekki klæddur nema þegar hópurinn er þunnur eða ég í þeim mun betra líkamlegu standi.
FYRIRKOMULAG Í LEIKJUM
Ég get hins vegar, eins og aðrir, tekið að mér að skipta EF ALLIR eru sáttir við verkaskiptingu og þann vilja, sem endurspeglaðist í máli manna eftir leik, að þeir sem vermi bekkinn þurfi að sætta sig við að koma ekki inn á, nema þeir sem eru í byrjunarliði þurfi hvíld.
Svo ég tali fyrir mig þá er það fyrirkomuleg mér að skapi. Ég vil til dæmis ekki koma sjálfur inn og vera dragbítur inni á vellinum. Ég vil að allt verði gert til að við vinnum sem flesta leiki, þó það þýði setu á bekknum leik eftir leik. Við munum sem hópur hafa gaman að sumrinu, ef metnaðurinn til að vinna leiki er til staðar. Annars er hætt við að betri menn í liðinu missi áhugann. Ég vil til dæmis ekki sjá að menn eins og Halldór, Kiddi og Hjörvar séu teknir af velli nema þeir séu alveg búnir á því. Mér heyrist flestir á þeirri skoðun en á hitt ber að líta að í hópnum eru menn sem eru ekki sammála því. Þeir eru fleiri en einn eða tveir. Þess hluti verðum við að fá á hreint, strax í upphafi sumars.
Við þurfum líka að hafa í huga að mætingin hefur verið ákaflega misjöfn, bæði í vetur og undanfarin sumur. Þó 20 manns hafi mætt í kvöld er ekki hægt að gera ráð fyrir því í alla leiki. Ef við förum þá leið að spila ávallt á bestu 11 mönnunum, þá er hætt við að einhverjir gefist upp á að mæta. Það hefur verið þannig í öllum liðum sem ég hef spilað í. Þegar svo kemur að því lykilmenn forfallast, til dæmis vegna sumarleyfa, er hætt við að fáskipað verði í hópnum í leikjum. Ég kýs þó sjálfur að líta svo á að slíkir leikir séu tækifæri fyrir mig til að sanna mig. Ég hvet aðra, sem byrja ekki alltaf inná, til að tileinka sér það viðhorf.
SEGIÐ YKKAR SKOÐUN
Tuskan sem við fengum í andlitið í kvöld var blaut og köld. Það er hins vegar ekkert volæði framundan. Frábært sumar er að fara af stað og það er í okkar höndum að gera það skemmtilegt. Notum tuskuna til að skola af okkur vorskítinn. Ég hvet alla þá sem mættu í kvöld, auk þeirra sem mættu ekki, til að segja sína skoðun á þessum málum sem ég hef hér reifað. Verið hreinskilnir og látið sjónarmið ykkar uppi. Við þurfum skelegga umræðu, frá öllum í hópnum. Svarið því hvernig þið viljið hafa leikskipulagið, til dæmis hvort þeir sem mæti á æfingir eigi að spila mest, eða hinir, sem ef til vill eru betri leikmenn.
Fyrirkomulag æfinga ræðst í þessari viku. Á það verður allt kapp lagt. Flestir virtust á því að æfa á þriðjudögum, þar sem flestir aðrir virkir dagar eru leikdagar.
Kv. Baldur
Ég er alls ekki sammála því að leikurinn hafi tapast á skiptingum. Ekki nema menn tali um skiptinguna í hálfleik sem einhverja lélega (ég kom inná því að Freyr sagðist þurfa skiptingu).
Það sem ég vil mikið frekar meina er að við vorum að spila vitlaust kerfi. Með of marga menn framanlega á vellinum og alls ekki næga breidd á vellinum. Þetta kerfi gengur nokkuð vel upp þegar bakverðir geta hlaupið upp og niður völlinn allan leikinn en það getum við ekki. Ég vil mikið frekar spila 4-5-1 með marga menn fyrir aftan boltann og svo sækja hratt.
Í þessum leik fengu bakverðir Elliða að dóla með boltann og það fór ekki neinn í þá. En auðvitað höfum við líka spilað OFT mikið betur.
Ég er algjörlega á því að við eigum að spila á sterkustu 11 og taldi mig vera að gera það þegar ég kom inn á í hálfleik í 10 – 15 mínútur og hljóp eins og ég get (sem er ekki mikið
). Legg til að við spilum á okkar sterkasta í öllum leikjum og æfum svo eins og menn. Mæting á æfingar á að vera góð og menn geta sýnt hvað þeir geta á æfingunum.
Ég er mjög sáttur við það að Baldur verði okkar þjálfari í sumar og skal lúta öllu sem hann segir
(eða næstum því eigandinn verður að fá að spila SMÁ).
En eins og staðan er núna eru 10 búnir að borga fyrir sumarið þannig að það er kannski bara spurning um að þeir spili næsta leik
:D
kv. Eigandinn
Ég ætlaði að bíða með mitt komment þangað til ég væri búinn að sjá hvað fór á milli manna í klefanum eftir leikinn, en ég læt vaða.
Ég ætla að koma með mína skoðun í tveimur hlutum, önnur um leikinn í kvöld og hvernig ég upplifði hann og svo hin um framhaldið.
Ég ákvað að melda mig út úr leiknum í dag þar sem ég er að rembast við að koma mér í form og tók erfiða æfingu fyrr í dag, en eftir æfingu sá ég að það voru margir að boða forföll í leikinn og ákvað ég þess vegna að mæta í leikinn til þess að sýna lit og stuðning og jafnvel koma inná er við væru fáliðaðir.
En annað kom á daginn og 20 sprækir strákar mættir til leiks og því nóg af mannskap. Ég ákvað að hita ekki upp þar sem ég bjóst ekki við því að vera að byrja leikinn, sem og varð raunin. Tók ég því sæti mitt á bekknum sæll og glaður, þá kom tillaga um að hafa fasta skiptimenn í leiknum þ.e.a.s. fyrirfram ákveðið hvernig skiptingum yrði háttað. Þessu var ég ósammála og kom því á framfæri, en enginn virtist taka undir það hjá mér. Gott og vel. Ég fékk ss. stöðu sem hægri bakvörður (þar sem ég hafði bent á þá stöðu sem dæmi um hvar ég gæti spilað).
Gallarnir á því sem ég sá á þessu fasta kerfi voru.
1. við erum ekki með það breiðan hóp að við höfum 2 leikmenn í hverja stöðu
2. hitt kerfið hefur gengið ágætlega, því flestir okkar gera sér grein fyrir því hvar við getum spilað eða hvaða staða hentar okkur best. En ef ekki þá hafa þeir sem sjá um skiptingar sennilega skoðun á því hvar viðkomandi getur spilað.
3. það er fullt af óvissuþáttum sem geta komið inn í það hvernig skiptingu er háttað t.d. meiðsli, annað leikkerfi, þreyta hjá öðrum leikmönnum og tilfærsla innan vallar. Eins og hvað með þann sem telur sig geta spilað frammi, en Kiddi og Halldór þreytast ekki neitt en Kobbi er orðinn dauð þreyttur og skiptimaðurinn hans líka má þá enginn annar spila hana? (einföldun).
Svo þegar kom að því að mín staða losnaði var ég á grasinu að hita upp….og missti af því að koma inná. Seinna var mér boðið að koma inn fyrir Frey í hálfleik, en stöðu hvers hefði ég verið að taka þá?
Annað, skoðanafrelsi innan liðsins og að allir séu jafnir. Í fyrri hálfleik fengum við aukaspyrnu á vinstri hluta vallarins, og vinstri fótar maður er klár í að taka spyrnuna. En þá koma boð frá hliðarlínunni um að hægri fótar maður skuli taka hana, ég benti á að það skipti kansi ekki máli hvor tæki spyrnuna, og fékk frekar kaldar kveðjur.
Ákvað ég því að koma mér heim á leið en gerði mér stutt stopp í stúkunni að spjalla við kunningja mína, en varð vitni að atviki sem mér fannst miður. Þar var okkar leikmaður sem var víst ósáttur með sinn spilatíma í kv. sem missti boltann frá sér í návígi og hætti að berjast, en skammaði svo þann sem var að reyna að bjarga hans mistökum. Ég hef lengi talað um það að við þurfum að tala saman inni á vellinum…en TALA SAMAN er lykillinn, ekki skamma.
endilega segið ykkar skoðun á þessu.
En varðandi framhaldið þá er ég ekki svartsýnn þó svo tuðið í mér núna láti það líta út fyrir það. Ég vill meina að það búi heilmikið í okkar hóp og við eigum mikið inni, og tel það vara gott að ef við þurftum skell þá var það í fyrsta leik því við þurfum að ræða framhaldið. Ég las umræðuna um okkar besta lið inni á vellinum og svo hina leikmennina til þess að skipta við þá og hvíla, þessu er ég sammála upp að vissu marki. Allir erum við í þessu til að hafa gaman og vinna, plús félagskapurinn sem þessu fylgir. En mér finnst töluverð einföldun að biðja um okkar 11 mestu inná í hverjum leik. Því við borgum jú allir okkar gjald (vonandi) og eigum tilkall í spilatíma, eins er mæting á æfingar frekar dræm. Hvar stöndum við ef þetta verður raunin, með lítinn æfingahóp og enga skiptimenn í leiki?
Svo er ég að hluta sammála Skúla varðandi leikkerfið, ég vill skipta í 4-5-1 því að ég býst heldur ekki við því að við getum spilað Kristni og Halldóri saman í öllum leikjunum. Við höfum spilað þetta kerfi og gengið vel.
kv.
Bjartmar
Sælir félagar.
Það var nú ekki meint þannig að leikurinn hafi tapist út af skiptingum, það var ítrekað vel í gær. Það er vandasamt verk að skipta inn á svo vel sé þannig að jafnvægi haldist í liðinu sem er inn á vellinum hverju sinni.
Það er bara þannig að í hverju liði eru ákveðnir menn sem eru kannski meira í boltanum en aðrir og eru mikilvægari póstar í því að halda boltanum en aðrir og ég held það þurfi að fara vandlega í það að skipta út mönnum.
Mín skoðun er sú að við þurfum bara á næstu æfingu að marka okkur stefnu. Við þurfum að koma okkur niður á leikkerfi sem allir skilja og allir vita hvaða hlutverki þeir hafa að gegna, mér fannst það koma vel í ljós í gær að menn eru ekki alveg vissir, sérstaklega þeir sem eru á miðjunni hvar þeir eiga að vera þegar við verjumst og það voru allt of oft fríir Elliðamenn sem komu hlaupandi upp miðjuna við vítateiginn.
Eins þurfum við að taka ákvörðun um það hvernig við ætlum að haga skiptingum. Eigum við að spila á besta liðinu eða eigum við að leyfa öllum að vera með í hverjum leik!! Ég er á þeirri skoðun að þegar að það mæta 20 manns í leik þá er það gríðarlega erfitt. Ég er ekki viss um að það sé hægt að halda jafnvægi í liðinu þegar þú þarft að skipta inn 9 mönnum og 10 stöður til skiptanna (þar sem það er enginn varamarkvörður). Það er allavega held ég ekki mörgum þjálfurum sem tekst það.
Ef það eru hinsvegar 14 – 15 manns sem mæta í leiki þá er það mun auðveldara.
Ég er sammála Bjartmari í því að við eigum ekki að ákveða fyrir fram hver er tekinn út af fyrir hvern. Eins og t.d. í gær þá fannst mér Haffi vera að standa sig mjög vel bæði í vörn og sókn og hann var tekinn fyrstur út af! Kom svo aldrei inn á aftur!!!
Það er nóg eftir af tímabilinu og það eru margir sem halda því fram að lið læri meira af því að tapa en að vinna og ég held að við munum gera það og mæta tvíefldir í næsta leik.
Að lokum, það er eðlilegt að allir sem æfa og borga fái sinn spilatíma en þetta er alltaf ákveðin vandræði sem menn lenda í í þannig aðstöðu. Sem er að haga skiptingum þannig að jafnvægi haldist innan liðsins, ég þekki það sjálfur úr körfunni þar sem eru bara 5 inn á vellinum að það er ekki auðvelt að halda þessu jafnvægi og leyfa öllum að vera með.
Eins og ég sagði fyrr þá held ég að það sé ógerlegt að gera það með 20 manna hóp, það er bara ekki hægt. Það geta aldrei allir orðið ánægðir.
kv.
Gústi.
Vandamálið er bara að við erum 20-25 með 20-25 mismunandi skoðanir. Við þurfum einn aðila til að vera okkar þjálfari. Hann mun sjá um skiptingar og stilla upp í kerfi. Hans ákvarðanir skulu svo virða og menn taka því ef þeir fái að spila lítið eða ekkert. Þessi aðili getur verið Baldur, Skúli eða e-n annar.
Annars er ég mjög ánægður með þessa umræðu….
Ég er til í að vera sá aðili en með því skilyrði að ég stjórni þá. Þá er ekkert víst að allir komi inná í leikjum en gott að hafa marga með sér. Því miður kann ég ekki að vera ungmennafélagsþjálfari
kv. Skúli
Er sammála því að það var vont að taka menn út af sem voru að standa sig vel í gær. Nefni þar menn eins og Njörð, Hafþór og Haffa. Reyndi þar framan af að skipta út úr stöðum þar sem menn eru minna í boltanum, t.d. bakverðir.
Með 20 menn var það ómögulegt allan leikinn. 14-15 er ákjósanleg tala en það er erfitt að skikka suma til að vera heima ef 20 bjóða sig fram. Það getur nefnilega verið að við þurfum á þeim sömu að halda í einhverjum leikjum sumarsins, og þeir borga jú jafn mikið.
Ég styð það að Skúli stjórni í þeim leikjum sem hann kemst. Það verður þá að vera alveg klárt að allir beri virðingu fyrir hans ákvörðunum, leikkerfi og innáskiptingum. Við þurfum þá að fara yfir skipulagið áður en leikurinn byrjar. Tíu mínútum fyrir leik í gær voru enn nokkrir ókomnir, þó talað hafi verið um að mæta hálftíma fyrir leik.
Held að þetta sé kristaltært…langbest að hafa einn mann sem tekur ákvarðanir og kemur með leiðbeiningar (“nýta kantana” “halda boltanum niðri” “fá boltann í lappirnar” “byrjum frá fyrstu mínútu” osfrv…hehe allt þetta klassíska).
Vitum eins allir að við hefðum getað gert mikið betur í gær og því lærum við bara af reynslunni núna…
Áfram metró
ps. er enn svekktur að hafa ekki skorað í gær…var í bleikri brók sem ég ætlaði að flagga ef markið kæmi…kemur kannski seinna…hehe
Lýst vel á Skúla sem þjálfara (veit samt ekki hvort ég taki mark á Liverpool manni) !!! En með einum þjálfara þarf ekki endilega að menn þurfi að þegja og sitja á sínum skoðunum. Við erum lið ekki 20 einstaklingar og því ættum við að geta rætt um leikina, leikaðferð, o.s.frv. en Skúli mundi svo ákveða hvernig allt væri….
og Halldór….djöfull hefði ég viljað að þú hafir skorað!!!
Við erum komnir með fastan æfingatíma upp á gervigrasinu í Mosó klukkan 21:15 – 22:15 alla þriðjudaga í sumar. Við höfum hálfan völl en ég veit að enn sem komið er er enginn með fastan tíma á hinum helmningnum.
Við fáum þetta á mjög góðu verði, svipuðu og í Egilshöll á besta tíma (miðað við umræðuna í gær).
Við höfum svo kost á því að bæta annarri æfingu við á gervigrasinu við Kaplakrika, sem við fáum á einstökum prís, ef vilji er fyrir.
En sem sagt: TAKIÐ ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIN FRÁ Í SUMAR.
Mín skoðun er sú að það eina sem er að hjá okkur er SKIPULAGSLEYSI. Við erum með lið sem á að geta unnið hvaða lið sem er í þessari deild, þurfum bara fastan mann sem stjórnar, hittumst tímanlega fyrir leiki og ræðum um hvaða kerfi verður spilað, hverjir spila hvaða stöður, og HVERNIG viðkomandi á að spila sína stöðu. Það skiptir engu máli hversu mikið menn berjast, hlaupa og hreyfa sig, ef við berjumst og hlaupum ekki SEM LIÐ.
ég er sammála fyrri mönnum, og heimta þjálfara og ekkert endilega sem er í hópnum fyrir. annars er það bara áfram Metró og höfum gaman af þessu(en það er lykilatriði).
En mikið djöfull vorum við fallegir
Nákvæmlega….og fyrirliðin bar af!!!!
Ég er sammála, þurfum herforingja í brúnna og ekki verra að hann sé Liverpool maður
Það á vel að vera hægt að spila sem mest á sterkasta liðinu og gefa sem flestum tækifæri með því t.d gefa lykilmönnum hvíld fyrr í leiknum og einnig að dreifa skiptingum yfir leikinn(Þarf ekki að vera mikið meira en 5mín). Elliði var t.d með nokkrar skiptingar í fyrri hálfleik og svo komu sterku mennirnir þeirra til baka í seinni hálfleik og kláruðu okkur.
Þurfum að hafa liðsfund mjög fljótlega þar sem við förum yfir málin og fáum okkur nokkra kalda…..
kaldir klikka nánast aldrei!!!!!
Ég vildi að ég hefði tekið þátt í þessu í dag, en það var mikið að gera hjá mér.
Eníhú, ég er nokkurn veginn á sömu línu og þeir sem hafa þegar tjáð sig í dag. Ég er ekki hérna til að taka þátt í bumbubolta, ég er hérna til að vinna og gera gott mót, og ef það kostar að ég þurfi að eyða tíma á bekknum, þá stend ég bara öskrandi á hliðarlínunni. Síðan þyrfti ég bara að sanna mig inni á vellinum fyrir þeim sem velur í liðið, hvort sem það er á æfingum eða í leikjum.
Svo kvitta ég endilega upp á að Skúli stýri liðinu, vilji hann það og sjái sér fært að mæta á helst alla leiki í sumar.
Einnig er ég ánægður með að fá fastann tíma fyrir æfingar, og Skúli mætti endilega redda hinum tímanum sem talað við um fyrir þá sem vilja meira.
Viktor – Ertu ekki hérna til að taka þátt í bumbubolta ??? Hvað er þetta framan á þér sem þú ert búinn að vera að safna í allan vetur:)
Líst annars vel á þessa umræðu og að Skúli stjórni og líst einstaklega vel á þá hugmynd að hittast yfir bjór
kv.
Gústi.
Ja, þetta er allt gott og blessað.
En við skulum hafa i huga að eins og i fyrra þa mun ekki vera svona mæting a bekkinn i alla leiki. Þannig að malið með að menn geti ekki spilað er ekkert til að hafa ahyggjur af.
Varðandi æfingar, að i fyrra þa nefndi eg nokkrum sinnum að það væri nauðsynlegt að gera ALVÖRU æfingar, þo það væri ekki nema 10-15 min a æfingu. Þa fekk eg að heyra að menn væru nu i þessu til að hafa gaman og það væri mun skemtilegra að spila.
Nuna virðist vera öðruvisi hugur i mönnum, sem er ekkert nema gott um að segja. En þa vil eg stinga upp a að við bætum aðeins æfingarnar þar sem menn vilja ju VINNA leiki.
Og það eru nokkrir hlutir sem alveg mætti æfa aðeins betur.
Hvað segja menn?
Smá alvöru æfinga koma vonandi í veg fyrir “stór” mistök eins og ég gerði í seinasta leik
Styð að við gerum smá í 10-15 mín! Legg einnig til að Baldur verði aðstoðarþjálfari með Skúla og stjórni í hans fjarveru!
Styð það að hafa einn mann sem stýrir liðinu og einn aðstoðarmann til vara. Þetta verða að vera menn sem geta mætt á helst alla leiki til þess að geta metið frammistöðu manna á milli leikja menn geti unnið sér inn meiri spilatíma á ef þeir standa sig vel. Samkeppni um spilatíma er til góða og menn eiga berjast fyrir meiri spilatíma inná vellinum.
Varðandi spilatíma þá erum við með nokkra lykilmenn sem eiga ekkert að fara útaf nema þeir séu að standa sig virkilega illa, eru meiddir eða þreyttir. Svo erum við með fleirri menn sem eru mjög svipaðir að getu sem þurfa að fá sinn spilatíma til þess að vera í leikformi þegar hópurinn er þunnskipaðari sem að kemur örugglega til með að vera einhverntíman. Ekki er hægt að meta fyrir leik hvenær einhver maður kemur inná í einhverja stöðu heldur verður að meta eftir frammistöðu leikmanns sem er inná vellinum hvort að hann eigi að fara útaf og setja þá inná sterkasta mann í þeirri stöðu hverju sinni.
Æfingar þurfa að vera markvissari og við þurfum að mæta sem flestir byrja kannski á reitabolta, skotæfingum, spila tveggjasnertingabolta og klára svo með alvöru leik, þarf ekki að vera flókið.
Varðandi leikkerfi er ég sammála Skúla með að þetta kerfi var ekki að virka í þessum leik, sérstakleg þegar við fórum að skipta inná þá vissu miðjumennirnir ekkert hvar þeir ættu að vera, held að það hafi verið komnir 3 hægra megin á tímabili. Spilum eitthvað sem að við þekkjum allir t.d. 4-5-1 eða 4-4-2 með annan sóknarmann aftar.
Líst vel á þennan æfingatíma, það ættu allir að geta mætt á þessum tíma.
Áfram Metró
Kv.
Finnur
Ég er á því að ef að menn mæta á æfingar þá er létt verk að koma þessu gullfallega liði saman og setja upp kerfi sem að virkar ,en það er ómögulegt að gera það svo vel sé korter í leik .
Það var fyrst og fremst leikkerfið sem klikkaði í þessum leik og hef ég komið þeirri skoðun minni á framfæri áður (í æfingaleikjum)en við dræmar undurtektir ,við spiluðum tvo æfingaleiki með þetta kerfi og það blasti við þeim sem vildu sjá að þetta kallar á að menn séu mun hreyfanlegri og samæfðari svo maður minnist ekki á innáskiptingar inn í svona kerfi.
Ég gef ekki mikið fyrir þetta með mistök við innáskiptingar ,Baldur stóð sig með mikilli prýði það er bara þannig að það verða allir að fá að spreyta sig eitthvað aðeins og það var Það sem vakti fyrir honum með þessum innskiptingum, ég er sammála því að 4-5-1 eða 4-4-2 er leikkerfi sem við ættu að notast við það er þá á hreinu hvaða stöðu menn eiga að spila í.
Það er líka ágætt að ræða það einsog við gerðum í fyrra hvaða stöður menn vilja spila og hafa það nokkuð niður neglt.
Annars eru þetta allt hlutir sem við eigum að ræða á æfingum og vonandi fara menn að sjá sér fært um að mæta.
p.s bjammi þú ert rúsínan mín
kv.kobbi
sælir piltar.
Þá er ég mætturí land, hvenær er næsta æfing?
Er ekki örugglega æfing á morgun?