Lékum gegn Elliða í kvöld í fínu veðri og góðum aðstæðum.
Inn á byrjuðu
Gústi,
Haffi, Hjörvar, Ásgeir, Sævar
Hafþór, Njörður, Freyr, Kobbi
Halldór og Kiddi
Seint í fyrri hálfleik komu svo Viktor inn á (lék í 50 mín), Finnur (45 mín).
Í hálfleik bað Freyr um skiptingu og Hafþór Atli kom út.
Þessir komu inn á í síðari hálfleik: Skúli (lék 10-15 mín), Andri (30 mín), Raggi (30 mín), Víðir (20 mín) Ottó (10-15 mín), Gummi (ca. 10 mín).
Nítján fengu að spreyta sig í kvöld, af þeim tuttugu sem mættu klæddir.
Fyrri hálfleikur var ágætur af okkar hálfu. Við vorum mjög óheppnir að skora ekki. Kiddi átti hörku skalla í slá og átti auk þess eitt færi einn á móti markmanni. Hjörvar átti góðan skalla sem fór naumlega framhjá. Ásgeir gerði ein slæm mistök snemma leiks sem kostuðu mark en annars áttu þeir varla skot að marki, þó nokkrum sinnum hafi skapast hætta okkar megin vegna slæmra sendinga úr vörninni og útsparka. Við sóttum í okkur veðrið eftir því sem leið á hálfleikinn en tókst ekki að skora þrátt fyrir nokkur ákjósanleg færi.
Eftir um tíu mínútna leik í síðari hálfleik fengum við á okkur annað mark. Ég man ekki hvernig það atvikaðist en í kjölfarið var úr okkur allur vindur. Eflaust má að hluta til rekja það til ótímabærra skiptinga en mér var falið það hlutverk að skipta mönnum inn á í leiknum. Við það naut ég aðstoðar Skúla og fleiri eftir atvikum.
Leikurinn endaði 5-0. Það gefur ef til vill rétta mynd af síðasta hálftímanum en ekki fyrstu 50 mínútunum, en við vorum beinlínis óheppnir að vera undir í hálfleik.
ÓÁNÆGJA EFTIR LEIK
Eftir leikinn ræddu menn saman inn í klefa og voru ósáttir. Menn voru ósáttir við að nýir leikmenn, sem menn vissu vart hvað hétu, kæmu inn og spiluðu í fyrsta leik. Það tek ég á mig, þar sem ég reyndi að haga skiptingum þannig að flestir fengju einhverjar mínútur. Þær raddir voru háværar inn í klefa að við yrðum að gera það upp við okkur hvort við vildum spila á besta mögulega liðinu hverju sinni, eða spila þannig að sem flestir fái að spreyta sig. Hjá þeim 10-15 mönnum sem voru inn í klefa eftir leik vildu flestir þeir sem tóku til máls að besta liðið yrði ávallt inn á vellinum. Lykilmenn kæmu ef til vill út til að hvíla sig í fáeinar mínútur, en yrðu svo settir aftur inn hið fyrsta. Mér heyrðist meirihluti vera fyrir því fyrirkomulagi en veit þó að menn sem eru á öndverðum meiði héldu sig til hlés í klefanum.
Menn virtust sammála um að rangar ákvarðanir í skiptingum hafi orðið til þess að leikurinn tapaðist með þessum mun. Ég tek það alfarið á mig. Ég ítreka það hins vegar sem ég sagði í klefanum að ég er ekkert æstur í að sjá um skiptingar, jafnvel þó ég sé ekki að spila. Ástæða þess að ég ákvað að mæta ekki í búning í kvöld er einföld. Ég sá að í hópnum voru nógu margir leikmenn sem eru í betra formi en ég, og eru því betur til þess fallnir að vera inn á vellinum. Ég mæti ekki klæddur nema þegar hópurinn er þunnur eða ég í þeim mun betra líkamlegu standi.
FYRIRKOMULAG Í LEIKJUM
Ég get hins vegar, eins og aðrir, tekið að mér að skipta EF ALLIR eru sáttir við verkaskiptingu og þann vilja, sem endurspeglaðist í máli manna eftir leik, að þeir sem vermi bekkinn þurfi að sætta sig við að koma ekki inn á, nema þeir sem eru í byrjunarliði þurfi hvíld.
Svo ég tali fyrir mig þá er það fyrirkomuleg mér að skapi. Ég vil til dæmis ekki koma sjálfur inn og vera dragbítur inni á vellinum. Ég vil að allt verði gert til að við vinnum sem flesta leiki, þó það þýði setu á bekknum leik eftir leik. Við munum sem hópur hafa gaman að sumrinu, ef metnaðurinn til að vinna leiki er til staðar. Annars er hætt við að betri menn í liðinu missi áhugann. Ég vil til dæmis ekki sjá að menn eins og Halldór, Kiddi og Hjörvar séu teknir af velli nema þeir séu alveg búnir á því. Mér heyrist flestir á þeirri skoðun en á hitt ber að líta að í hópnum eru menn sem eru ekki sammála því. Þeir eru fleiri en einn eða tveir. Þess hluti verðum við að fá á hreint, strax í upphafi sumars.
Við þurfum líka að hafa í huga að mætingin hefur verið ákaflega misjöfn, bæði í vetur og undanfarin sumur. Þó 20 manns hafi mætt í kvöld er ekki hægt að gera ráð fyrir því í alla leiki. Ef við förum þá leið að spila ávallt á bestu 11 mönnunum, þá er hætt við að einhverjir gefist upp á að mæta. Það hefur verið þannig í öllum liðum sem ég hef spilað í. Þegar svo kemur að því lykilmenn forfallast, til dæmis vegna sumarleyfa, er hætt við að fáskipað verði í hópnum í leikjum. Ég kýs þó sjálfur að líta svo á að slíkir leikir séu tækifæri fyrir mig til að sanna mig. Ég hvet aðra, sem byrja ekki alltaf inná, til að tileinka sér það viðhorf.
SEGIÐ YKKAR SKOÐUN
Tuskan sem við fengum í andlitið í kvöld var blaut og köld. Það er hins vegar ekkert volæði framundan. Frábært sumar er að fara af stað og það er í okkar höndum að gera það skemmtilegt. Notum tuskuna til að skola af okkur vorskítinn. Ég hvet alla þá sem mættu í kvöld, auk þeirra sem mættu ekki, til að segja sína skoðun á þessum málum sem ég hef hér reifað. Verið hreinskilnir og látið sjónarmið ykkar uppi. Við þurfum skelegga umræðu, frá öllum í hópnum. Svarið því hvernig þið viljið hafa leikskipulagið, til dæmis hvort þeir sem mæti á æfingir eigi að spila mest, eða hinir, sem ef til vill eru betri leikmenn.
Fyrirkomulag æfinga ræðst í þessari viku. Á það verður allt kapp lagt. Flestir virtust á því að æfa á þriðjudögum, þar sem flestir aðrir virkir dagar eru leikdagar.
Kv. Baldur